8 inni; en til þess að ganga úr skugga um þetta, hefði þurft að vega fosforsýruna í báðum tilraununum, en efnið var ekki nægi- lega mikið til þess að jeg gæti það. En sje fosfor í hinum or- ganiska parti hvíta efnisins, þá má af þvi draga allmerkilega á- lyktun um uppruna þess. Organiskt efni, sem köfnunarefni og fosfor er í, og að öðru leyti hefir þau kemisku einkenni, sem jeg hefi fundið hjá efni því, sem um er að ræða, sver sig efiaust f, ætt við þann fiokk eggjahvítuefnanna sem kölluð eru Nukleoal- bumin, en eitt hið almennasta og mest notaða nukleoalbumin er ostefnið (kasein) í mjólkinni. En fyrir þá sök, að mjer hefir ekki tekizt að sanna til hlýtar, að fosfor sje til staðar, verður að kom- a7t eptir uppruna hvita efnisins á annan hátt. Efvjer nú, áður en vjer tökum þessa rannsókn fyrir, athugum hvað vjer höfum feng- ið að vita um organiska efnið: að organiska efnið er einn af helztu pörtum hvíta efnisins og hefir að nokkru leyti verið sú grind, sem hefir gefið þvi sína lögun, að organiska efnið hefir inni að halda talsvert köfnunarefni, og að á því hafa lifað og þrif- izt ótal sveppir, og loksins að því fylgir mikið af fosforsýru og kaiki, þá má af þessu með áreiðanlegri vissu draga þær ályktanir: að organiska efnið" hafi ekki af tilvilfun blandazt saman við hvíta efnið, og að það sfe leifar af einhverju eggjahvítuefni. Hvíta efnið hefir, eins og sagt hefir verið áður, fundizt í ösku, auðsjáanlega eptir húsbruna, í þessu hvíta efni er organiskur part- ur, sem köfnunarefni kemur fyrir í, auk þess er í hvíta efninu mik- ið af fosforsýru og kalki, og í sjálfum organiska partinum er mjög líklegt að fosfor komi fyrir ; allt þetta bendir á lík efni og ostefni úr mfólk. En sökum þess að ekki er fyllilega sannað, að fosfor sje f organiska efninu sjálfu, þá væri ástæða til að spyrja: geta ekki þau einkenni, sem vjer höfum fundið, átt eins vel við einhver önnur dýra-eða plöntu-efni. Til þess að geta svarað þessari spurn- ingu, verðum vjer að rannsaka mínerölsku efnin í hvíta efninu, og af rannsókn þeirra og samanburði reyna að draga nýjar ályktanir. f>ess skal þá fyrst getið, að einn af mínerölsku pörtunum í hvíta efninu, kemur aldrei fyrir með eggjahvítuefnum hvorki úr dýrum nje plöntum. f>etta efni er leirjörð. í>að er nú ekkert efa- mál, að mestur hluti leirjarðarinnar í hvíta efninu úr krukkunni nr. i. er í sambandi við fosforsýruna, og sama má einnig segja um talsvert af leirjörðinni í hvíta efninu úr hinum krukkunum, þó er þar nokkuð af leirjörðinni að lfkindum sameinað kísilsýru, og verð- um vjer að ætla, að það hafi blandazt saman við hvíta efnið af til- viljan. þrátt fyrir það, þó að þessu sje þannig varið, að leirjörð- in sje mestöll í sambandi við fosforsýruna, þá verð jeg að vera á þeirri skoðun, að öll leirjörðin sje til komin á þann hátt, að berg- tegundirnar i jörðunni, einkum blágrýti, hafi smám saman eyðzt