Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1900, Blaðsíða 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1900, Blaðsíða 1
Rannsókn í Rangárþingi sumarið 1899. Eftir Brynjúlý Jónsson. Veturinn 1899 heyrði eg kunnugan Rangæing segja, að í Ossabæj- arvelli í Landeyjum væri fornlegar rústir, sem sumir héldi að vera kynni þingbúðatóftir Höskulds Hvítanesgoða. Þetta leiddi til þess, að eg fór þangað rannsóknarferð í júnímán. s. á. Arangur þeirrar ferðar kemur fram í athugunum þeim, er hér fara á eftir. 1. Hvítanes. Svo segir Njála, kap. 94: »Vil ek nú biðja yður at þér leyfið at ek taka upp nýtt goðorð á Hvítanesi til handa Höskuldi«, og kap. 107: »Kom ek á Hvítanes, ok sá ek þar búðartóftir margar ok umbrot mikil«. Þessir staðir — og margir fleiri staðir í sögum — sýna það, að hvert goðorð hafði sitt þinghald og sinn þingstað. Þingsóknin mun oftast nær hafa verið kend við þingstaðinn; að minsta kosti var það svo með marg- ar aðalþingsóknirnar, t. d. Arnesþing, Þórnessþing o. fl.; og svo hefir það verið með hina nýju þingsókn Höskulds, að hún hefir verið kend við Hvítanes, og hann sjálfur því kallaður Hvítanessgoði. Örnefnið Hvttanes er nú týnt, og engin merki sjást, sem bendi til, hvar það hafi verið. Hafa menn því sett fram ýmsar getgátur um það. Sumir halda t. d., að það hafi verið sama sem Lambey, sem er skamt ofan frá Breiðabólstað. Þar héldu sýslumenn oft þing á miðöldunum, og bær var þar um nokkrahríð; er því ekki von að fornar rúnir sjáist. En þessi staður hefir þó ekki ver- ið í landeign Höskulds, heldur nokkuð langt þaðan. Þá hafa og aðrir, þar á meðal Páll alþingismaður í Arkvörn, haldið, að Hvítanes hafi verið þar, sem nú er bærinn Fíflholt. Það er næsti bær við Bergþórshvol, og 1

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.