Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1900, Blaðsíða 36

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1900, Blaðsíða 36
Um höfðaletur. Þá var eg barn að aldri, er eg sá fyrst höjðaletur. Amma mín átti útskorinn prjónastokk, sem aíi minn hafði smíðað handa fyrri konu sinni, Járngerði Jónsdóttur, og skorið naín hennar á lokið. Móðir mín átti og prjónastokk, er nafn hennar var skorið á lokið. Hún kendi mér að lesa þetta letur, og sagði mér, að það væri kallað höjðaletur. Hvers vegna það var kallað svo, vissi hún ekki með vissu, en hélt, eða hafði jafnvel heyrt, að það væri af þvi, að »leggirnir» á stöfunum hefðu »höfuð« á endunum. Snemma sá eg einnig höjðaletur á spónsköftum. Þó var það ein- kurí á eldri spónum. Nýrri spænir, þeir er þá tíðkuðust í minni sveit og þar í grend, voru flestir með sérstöku letri, sem kallað var.spónaletur, og var það allfrábrugðið höfðaletri. Frábrugðnastir voru stafirnir: a, m, n, og u, enda man eg bezt eftir þeim. En í þeim orðum, sem grafin voru á spæni þá, er eg sá, komu stafir stafrófsins ekki nærri allir fyrir, og get eg því ekkert um það sagt og veit ekki einu sinni, hvort til hefir verið fullkomið stafrof af því letri. Einkum tíðkuðu það frægir spónasmiðir, sem uppi voru í Rangárvallasýslu á yngri árum mínum, og var snilling- urinn Jón bóndi Þorsteinsson á Yindási í Landsveit fremstur þeirra. A siðari árum sínum voru þeir þó farnir að slá slöku við Þetta letur, en grófu á spónsköftin ýmist ártalið eða Jangamark eiganda með stórum lat- ínustöfum. Eftir þeirra dag veit eg ekki af neinum, er þetta letur hafi grafið, og er nú nokkuð langt síðan eg hefi séð það. Höjðaletur á spón- sköftum fór þá aftur að tiðkast í minni sveit, því að Asmundur bóndi Benediktsson, sem fluttist þangað (að Haga i Gnúpverjahreppi) úr Þingeyj- sýslu 1870, smíðar enn spæni með því letri. En yfir höfuð er spóna- smíði nú að leggjast niður, því matskeiðar fást svo ódýrar í verzlununum, að menn standa sig eigi við að smiða spæni fyrir jafn-lágt verð. Þá er eg fór að róa út, kyntist eg ýmsum mönnum, sem hagir

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.