18 að er, að landið gat ekki heitið Almenningur meðan bær var þar. Nafn bæjarins er týnt. En ekki sýnist mér vafamál, að hver bær hafi átt sitt nafn í Þórsmörk, eins og annarstaðar, þó Njála segi um þá: »er í Mörk hétu allir«. Það mun vera svo að skilja, að jafn- an, er einhver þeirra var nefndur, heflr verið bætt við til skýring- ar: í Mörk (t. d. Þuríðarstaðir i Mörk). Og stundum, þegar svo stóð á ræðu, hafa þeir verið teknir allir undir eitt, og nefndir »í Mörk« líkt og vér segjum nú »í Mörkinni«. Er hugsanlegt að ritari Njálu hafi aldrei heyrt þá nefnda óðruvísi en svo, og ekki þekkt hin ein- stöku nöfn bæjanna. Og sé þetta rétt til getið, þá bendir það til þess, að hann hafi ekki átt heima í Rangárþingi. En líka getur verið, að hann hafi slept að nefna hin einstöku bæjarnöfn, álitið hitt nægja og notað'það til að vera stuttorður. Það gerir hann sér oft far um. Sigurður Vigfússon ætlar, að Kápu-bærinn hafi verið miðbrinn á Þórsmörk, en mór þykir líklegra að það hafi verið innsti bærinn. Innar er naumast líklegt að bygð hafi verið, eftir landslagi og veðurlagi að dæma. Þuríðarstaðir (sjá Arb. '94, bls. 22), hafa án efa verið fremsti (syðstij bærinn. En hvar var þá miðbær- inn? Um það er eg fyrir mitt leyti varla í vafa. Stuttri bæjarleið fyrir innan Þuríðarstaði er Húsadalur. Þar valdi Sæmundur ög- mundsson sér bæjarstæði, er hann vildi búa á Þórsmörk, (sjá sama stað), og mun flestum sýnast, að hann hafi ekki getað betur valið. Það er óneitanlega byggilegasti staðurinn á allri Mörkiuni. Svo mun líka hafa verið í J'ornöld. ¦ Kápu-bæjarstæðið hefir vissulega verið á- litlegt líka meðan landið var óblásið. En þó fell eg nú frá þeirri tilgátu að þar hafi Ásbjörn Reyrketilsson sett bæ sinn, tel eg enn líklegra, að hann hafi sett hann i Húsadal. Ekki er von að forn rúst sjáist þar, Sæmundur mun hafa sett sinn bæ i hana og þannig eyðilagt hana. Bær Sæmundar hefir staðið á fegursta staðnum i dalnum, og ekkert er líklegra en að Ásbjörn hafi bygt á þeim sama stað. Lækur hefur runnið eftir dalnum og fram hjá bænum. Nú er hann þornaður, nema í leysingum, því uppblástur gengur ofan í dalbotninn og uppsprettan er sandkafin. Nafnið »Húsadalur« mun að vísu eigi vera eldra, en eftir bygð Sæmundar. Nafn hins forna bæ- jar hefir ef til vill aldrei verið annað en »Þórsmörk«. Að minsta kosti hefir svo verið meðan ekki voru fleiri bæir á Mörkinni. Nii vil ég líka, til þess að koma ekki í bága við Landn., falla frá þeirri tilgátu, sem enda var lausleg, að Steinfínnsstaðir hafl ver- ið fyrir sunnan Krossá og nafnið hafi breyst i Steinsholt. Set ég þá tilgátu í staðinn, að Kápu-bærinn sé Steinfinnsstaðir, því sain- kvæmt Landnámu námu báðir bræðurnir land »fyrir ofan Krossá«.