25 tæplega 2 álna djúpt í jörðu, varð fyrir partur af helluflór og á honum veggjarundirstaða. Þær leifar hafa verið yngri en hinar og hefir húsinu þá verið hleypt upp frá því sem var. Framantaldar menjar hafa sýnt það og sannað, að s&rfZa-nafnið á Qýgjarhóli hefir ekki verið neinn seinni tima tilbúningur, því hér hafa óefað fundist leifar af eldaskála og arni. Og svo sýnist, sem hér hafi jafnframt verið smiðja, þar sem málmur var bræddur, ljáir hertir o. s. frv. Einkum er þó þessi fundur merkilegur að því leyti að hann er þeygjandi vottur þess hve lengi nöfn geta haldist og minnt á uppruna sinn, þó kennimerki séu breytt og gleymd fyrir löngu. Br. J.