33 75 ára. Eftir hann tók jörðina hans son Guðmundur og var þar allan sinn aldur sera var 79 ár. Og eftir hann tók jörðina Magnús hans sonur og var á henni 66 ár. Og svo Guðmundur Magnússon um 11 ár. Nú er Guðrún Magnúsdóttir (1847)«. Aftan á blaðið hafði Þorleifur skrifað: »Þetta er skrifað eftir gömlum skjölum, sem eg hefi fundið á Skipum«. Orðin »er Skipana fiutti« hér á undan hefi eg (Br. J.) auðkent, þvi þau eru það, sem þýðingu hafa fyrir það mál, sem hér er um að ræða. VI. Á bls. 1819 eru teknar fram skýringatilraunir á bæjarnafninu Kaldaðarnes, þær er eg hafði heyrt. Nú hefir dr. Björn M. Ólsen sýnt mér þá vinsemd, að skrifa mér um það mál o. fl. Leiðir hann nafnið af ferjul:allan (ZaMaðarnes) og bendir á frásögn Flóamanna- sögu um ferju nær Kaldaðarnesi. Eg skal játa, að mér hafði eigi hugkvæmst samband þar á milli, og ekki man eg eftir, að eg hafi heyrt þessa skýringu áður. En eftir rækilega umhugsun sé eg, að þetta getur verið langlíklegasta skýringin. Til þess þarf samt: að hugsa sér ferjustaðinn nokkuð utarlega við nesið mikla, sem þá hefir verið milli árinnar og Fyllarlækjar, og að hugsa sér ferjuna komna á þegar á landnámstíð, áður en nesinu hafði verið gefið ákveðið nafn. Þá gat ferjukallan verið tíðkuð á einhverjum vissum stað svo utarlega í nesinu, að allur framhluti þess yrði kendur við hana. Svo gat farið með það eins og Lauganes undir Eyjafjöllum, að örnefnið yrði látið ná svo langt uppeftir, frá hinu eiginlega tiesi, kennileitalaust var og engin önnur örnefni tóku við. Með þessu móti hefði þetta ekki þurft að taka langan tima. Bærinn gat verið settur í »Kallanarnesið« þegar á landnámstíð og þó verið settur þar sem hann er. Og það getur varla verið vafamál, að þegar á land- námstið hefir hann verið bygður. Svo gott og viðáttumikið land gat ekki staðið lengi óbygt. En áður en honum var gefið nafnið, urðu skilyrðin fyrir nafninu að vera komin. Og eg get ekki betur séð, en að með þessu móti og þessu einu móti verði þau greið og eðlileg. En frá hvaða bæ var þá ferjað ? Bæjarnafnið Kirkjuferja sýnir, að þar hefir verið ferjustaður eftir kristni og gat verið áður líka. Sá ferjustaður hefir verið skamt upp frá Kaldaðarnesi. I Arnarbli gat líka verið ferjustaður, skamt ofan frá Kaldaðarnesi. Á báðum stöðunum hefði orðið að kalla ferju sunnanmegin. En óskiljanlegt er að alt hið mikla nes milli Ölfusár og Fyllarlækjar hefði fengið nafn 5