Jón Þorkelsson, skjalavörður, hefur safnað til slíkrar útgáfu, og hef- ur hann góðfúslega lofað mjer að blaða í safni sínu. Þetta ákvæði, að alinin sje 20 þumlungar, virðist ekki vera gamalt; að minsta kosti hef jeg ekki rekist á það í afskriftum drs. Jóns af hinum elstu handritum Búalaga. Að visu stendur það rjett á eftir grein, sem á við hina fornu alin, og segir, að »tvær (o: fornar) álnir geri stiku«, Enn þrátt firir það getur ákvæðið vel átt við »Hamborgaralinina«, sem eflaust hefur að þískum sið mátt skifta í 20 þumlunga. Að ákvæðið sje nitt, sjest og á orðinu kvarter, sem ekki kemur firir i þessari merkingu (4/4 álnar) i fornritum1). Jeg mun og síðar sína líkur tíl, að hinni fornu íslensku alin hafi verið skift í 24 þumlunga. Af öllu þessu virðist mega ráða, að hin prentuðu Búalög eigi hjer við »Hamborgar»-þumlunga. Annars var alin sú, sem tíðkaðist í Hamborg lítið eitt stærri enn þessi »íslenska Hamborgaralin«. I Meyers Konversationslexikon er rjett Hamborgaralin talin .......57,314 sentímetra Enn hin »íslenska Hamborgaralin« er . . . . 57,064 Munar þá.............. 0,25 eða 2 Va millímctrum4). Virðist eigi ólíklegt, að þessi munur stafi frá þvi, að menn hafi minkað hina þísku alin til að koma henni í betra samræmi við danska alin, þannig að hin minkaða »íslenska Hamborgaralin* irði rjettum ellefta parti (l/n) minni enn dönsk alin, eða dönsk alin ^j^ stærri enn »íslenska« alinin, sem kemur í sama stað niður. Aður enn Hamborgaralinin ruddi sjer til rúms var stiku-málið hið löglega lengdarmál á íslandi. Það var leitt í lög á dögum Páls biskups með ráði hans og Gissurar Hallssonar, sem þá var lögsógumað- ') Elsta mind orðsins 1 islensku er kvartil, og kemnr það firir í Biskupaann- alum Jóns Egilssonar (Safn t. s. ísl. I 84. bls.), rituðum í birjun 17. aldar. Eldri dæmi þekki jeg ekki. Enn um þær mundir hefur Hamborgaralinin" rutt sjer til rúms. a) Síðan þetta var ritað, hefur dr. Fritz Burg, bókavörður við bókasafn Hamborgar, góðfúslega látið mér í tje skírslur um þetta efni. I nijari ritum er Hamborgaralinin tal- in 0,573143 eða, með stittu broti, 0,57314 metrar, t. d. í Tafeln, bereohnet von H. A. L. Stiick, Hamborg 1876, II. bls., og þetta gildi (0,57314) er löghelgað af ráðinu i Hamborg með auglisingu 2. apríl 1869. I eldri ritum er Hamborgaralinin talin ofur- lítið stittri, t. d. í Tabellen der französischen masse und gewichte zu den in Hamburg ublichen, Hamb. 1798, er hún á 30. bls. talin jöfn 0,57279 metr. og í Vergleichun- gen der nenen französischen masse, gewichte u. miinzen mit den Iiamburgisclien, Hamb. 1811, jöfn 0,5729 metr. Enn alstaðar er hún þó nokkuð lengri enn hin íslenska Hamborgaralin".