/ upp kinni að koma um álnamál. Þetta ákvæði miðar bersínilegatil þess að gera enda á því »ranglæti manna« um álnamál, sem sagan telur tilefni til nímælanna, og er því aðalatriði laganna. Hitt er aukaatriði, að tvær álnir eru gerðar jafnar einni stiku, og stikan gerð að lengdarmálseiningu. Jón Sigurðsson heldur, að þessi breit- ing hafl verið gerð í því skini að laga hið níja íslenska stikumál eftir hinu enska lengdarmáli, yard, og er síst firir að sinja, að það kunni meðfram að hafa vakað firir mönnum. Enn hitt er ekki rjett sem J. S. segir, að islensk stika hafi verið »öldungis jöfn enskri yard} ef menn kasta brotunum«. 1 yard var víst þá eins og nú = 0,91439 metr., eða sem næst = 35 danskir þumlungar. Enn vjer munum síðar sjá, að stikan hefur verið sem næst jöfn 0,98286 metr. eða rúmlega 37Ya danskir þumlungar (37,58); verður hún þá ríflega 2^2 dönskum þumlungum lengri enn yard1). Annars munu bein viðskifti íslendinga við England ekki hafa verið mjög mikil um þessar mundir (o. 1200)2), og er það því fátt, sem mælir með því, að stikumálið eigi kin sitt að rekja til ensks lengdarmáls. Það er og óþarfl að sækja svo langt ástæðuna til þess, að stikan var lögleidd. Hin forna ís- lenska alin var svo stutt, að hún var mjög óhandhæg til að mæla með langar voðir eða því um líkt. Líka varð mælingin nákvæmari, ef mælt var með kvarða, sem var helmingi lengri enn álnakvarði. Merkileg er regla laganna um það, að »leggja skuli þumalfing- ur firir hverj'a stiku«, þegar vaðmál eða ljereí't eða klæði sjeu mæld. Þetta er einskonar uppbót á málinu, sem kaupanda er lögheimiluð, og um leið trigging firir því, að ríflega sje mælt. Þessi siður, að leggja þumalfingur firir hverja stiku, hjelst að minsta kosti fram und- ir siðbót8) og er ákvæðið þó ekki tekið upp í Jónsbók, þar sem hún talar um stiku4). Áður en stikulögin gengu í gildi, þegar mælt var með álnakvarða, hlítur þessi uppbót að hafa verið tiltölulega meiri, líklega »þumalfingur firir hverja alin«, því að mælingin verður því ónákvæmari og þörfin á uppbót því meiri, sem kvarðinn er stittri6); og munum vjer víkja að þessu síðar. ') Merkilegt er, að skotsk alin er talin 37,2 þumlungar enskir eða rúmlega 36 þumlungar danskir. Hún nálgast fremur íslensku stikuna, og gæti verið, að þar væri eitthvert samband á milli. Sbr. Murray. Engl. Diot. undir ell 1. 2) Um 1188 getur prestssaga Gruðmundar gó ða um kaupferð Ingimundar prests Þorgeirssonar til Englands, enn sú ferð var farin frá Noregi og til Noregs aftur. Bisk. I 433. bls. Sturl. Oxf. 105. bls. *) Morðbrjefabæklingur Gruðbrands biskups útg. 22. og 23. bls. ?) Jónsb. Kaupab. 28. (26.) kap. (útg. Ó. H. 234235. bls.). 6) Samskonar mælingar-uppbót virðist hafa verið gefin til skams tima í fleiri löndum. Finnur Magnússon segir i ritg. sinni um verslun Englendinga á íslandi á 15.