8 Vjer hverfum þá að hinu elsta lengdarmáli íslendinga, hinni fornu alin, sem tíðkast hafði frá alda öðli og hjelst í rauninni fram undir siðbót, þangað til »Hamborgaralinin« ruddi sjer til rúms, því að álnamálið er lika grundvöllur stikumálsins, sem áður er sagt. Hve löng var hin forna íslenska alin ? Um það efni hefur Páll Vídalín ritað allra manna best í Skíringum sínum iflr fornirði lög- bókar í greininni »Alin að lengd og meðalmaður*1). Hann kemst þar að þeirri niðurstöðu, að hin forna alin hafi verið x/7 (einum sjö- unda parti) stittri enn »Hamborgaralinin« íslenska, sem tíðkaðist á hans dögum, og færir góð og gild rök firir sínu máli, svo að vjer höfum þar ekki annað að gera enn rifja upp aftur röksemdir hans og bæta við nokkrum níjum, sem benda í sömu átt. Helsta sönnun Páls er dregin af meðalmans hæð. I Grágás segir, að löggarður skuli vera 5 feta þikkur við jörð niðri og þriggja ofan og taka í öxl manni af þrepi, »þeim er gildar alnar ok faðma hefir«.2) I Járnsíðu er sama ákvæðið orðað þannig: »Enþaterlöggarðr er er 5 fóta þykhr við jörð en þriggja ofan, axlhár aj þrepi meðal- manni.8) A báðum þessum stöðum er ljóst, að hæð garðsins er miðuð við meðalmans hæð. Enn í Jónsbók er sama greinin orðuð þannig: En þat er löggarðr er ð feta þykkr er við jörð niðri en þriggja ofan; hann skal táka í öxl þeim manni af þrepi, er hann er hálfrar fjórðu alnar hár.4) Ef vjer berum þennan Jónsbókarstað saman við hina staðina, sjáum vjer, að 3l/2alin hefur verið talin meðalmanshæð um það leiti, sem Jónsbók var færð í letur (c. 1280)5). Páll Vídalín eiðir mörgum, alt of mörgurn, orðum að því að sanna, að meðalmans hæð muni ekki hafa rírnað, síðan Jónsbók var samin. Enn á Páls dögum var meðalmanshæð alment talin 3 »Ham- borgarálnir« eða 655/u danskir þumlungar = 171,192 sentímetr. öldinni i Nord. Tidsskr. for oldkyndighed II 153. bls., að hver ráðvandur klæðsali eða ljereftasali á hans dögum sje vanur að leggja þumalfingur firir kvarðann i hvert sinn, sem hann leggur hann á. ') V. V., Skíringar 16.-55. bls. 2) Grág. Kb. II. 90. bls. Staðarhb. 451. bls. s) Járns. § 101 (Landabrb. 22. gr.) NgL. 290. bls. *) Jónsb. Landslb. 31. k. (útg. OH. 160. bls.) 6) Til hins sama bendir það, sem Snorri Sturluson segir i fleimskringlu, að Har- aldur konungur Guðinason hafi boðið nafna sinum, Haraldi harðráða, »7 fóta rúm eða þvi lengra, sem hann er hrri en aðrir menn*. Hjer er 1 fótur (fet) ber- sínilega jafn Vj alin. Það sjest á samanburði við Jónsbókarstaðinn.