9 Lengd hinnar fornu íslensku álnar fæst nú með því að deila þessum tölum með 3V2. Hún verður þá = 6/7 »Hamborgarálnar«, eða V7 minni en Hamborgaralin«, eins og Páll segir. Mæld með dönsku máli verður hún 1854/77 d. þumlungar1), með frönsku máli 48,909 sentímtr. Önnur röksemd Páls er dregin af málfaðmi meðalmans og vall- armálinu forna. Málfaðmur meðalmans virðist frá alda öðli hafa verið talinn jafn meðalmans hæð. Páll telur hann 31/?, aun, mældan með hinni fornu alin, og kemur það heim við áðurgreint ákvæði Jónsbókar, er telur meðalmans hæð 3V2 alin, og við hin elstu handrit Búalaga.2) Aftur á móti telur hann málfaðm jafnan 3 »Hamborgar- álnum«. Hjer kemur þá enn fram hið sama hlutfall og áður, að ein forn alin verður jöfn 6/7 »Hamborgarálnar« eða er x/7 minni en hún. Allir vita, að ein dagslátta er 900 ferhirningsfaðmar, eða jöfn ferskeitingi (»kvaðrati«), sem er 30 faðmar á hvern veg. Nú teljum vjer vanalega hvern faðm jafnan 3 dönskum álnum, og er sá faðm- ur V10 stærri enn hinn forni málfaðmur. Af þessu leiðir að dag- sláttan er nú talsvert stærri, en hún var til forna, því að þá var hún talin 900 ferhirndir málfaðmar eða 30 málfaðmar á hvern veg, og verður munurinn auðvitað talsvert meiri á flatarmálinu en á lengdarmálinu. Ef vér köllum málfaðmslengdina M og lengd hins danska faðms F, þá er: P = »/io M Af því leiðir, að P»=»Vioo M2, eða í orðum: Hver ferhirningsfaðmur danskur er jafn l21/ioo íer" hirnds málfaðms. Líka má segja þetta þannig, að 100 danskir fer- hirningsfaðmar sjeu j'afnir 121 ferhirndum málföðmum. Af þvíleiðir ') Jón Sigurðsson telur hana 185/7 d. þuml., enn brotið er ekki nákvæmt. 2) í Stokkhólmshdr. C 6, 4°, sem hefur Búalög á hls. 151 h158 a, stendur þessi grein: En málfaðmr töðu er fyrir kúgildi til kaups ok á at vera hdlf fjórða alin d hvern veg. Handritið er skrifað seint á 15. ó'ld, áður enn Hamborgaralinin" fór að tíðkast. Sama stendur i AM. 161, 4°, lóghók Páls Stígssonar, skrifaðri 1561 1565. Sbr. hin prentuðu Búalög, Hrapseijarútg. 1775, 103. hls. Þar er first skíring um málfaðm eftir útgefandann, sett á millí sviga, að hann sje að rjettu 3 álnír, sem nú ganga hjer á landi" (o: 1775 þá er Hamborgaralin" enn lögalin). Enn síðar & sömu bls. stendur hin áður tilfærða Búalagagrein, tekin eftir afskrift af kálfskins- bók (sbr. formálann), og samhljóða Stokkhólmshandritinu að efninu til (málfaðmur = 3'/s alin). Hjer og annars staðar, þar sem jeg vitna í forn handrit Búalaga, fer jeg eftir afskriftum drs. Jóns Þorkelssonar, sem hann hefnr góðfúslega leift mjer að nota. 2