12 meðalhæð íslenskra karlmanna.' Hann telur hana 3 Hamborgarálnir = 65B/ii danska þumlunga = 171, 192 sentímetra. Út úr þessum tölum fæst síðan lengd hinnar fornu álnar með því að deila þeim með 3V2 (sbr. áður). Enn er grundvöllurinn áreiðanlegur ? Tákna þessar tölur hina sönnu meðalhæð íslenskra karlmanna? Eflaust fara þær mjög nærri hinu rjetta, enn tæpast eru þær alveg nákvæmar, því að sönn meðal- manshæð verður ekki fundin öðru vísi enn með því að mæla mjög marga, helst alla, fullvaxna íslenska karlmenn, og taka síðan meðaltal af öll- um hæðunum; enn engar líkur eru til, að slíkar mælingar hafl farið fram hjer á landi, hvorki fir nje siðar. Það virðist því liggja í aug- um uppi, að meðalmanshæðin er sett nokkuð af handahófi, bæði hjá Páli Vídalín, er hann setur hana 3 »Hamborgarálnir«, og í Jónsbók, er telur hana hálfa fjórðu alin þeirra tíma. Hjer verður því aldrei um annað enn handahófsreikning að ræða. Enn handahófið mundi þó verða nokkru minna enn ella, ef vjer gætum ákveðið meðalmanshæðina með fullri nákvæmni. Það getum vjer nú því miður ekki sem stendur af því að mælingar vantar Enn samt er það skoðun mín, að Páll hafi gert meðalmanshæðina heldur lága. Meðalhæð Norðmanna, sem vjer erum skildastir, mun vera heldur ifir enn undir 172 sentímetrum.1) Ef vjer gerum meðalhæð íslendinga 172 sentímetra = 65,76 (rúm- lega 658/4) danska þumlunga, higg jeg, að það fari nær hinu rjetta enn tölur Páls Vídalíns, og munar þó ekki miklu. Lengd hinnar fornu álnar fæst þá með því að deila þessum tölum með 3x/2; og verður = 49,143 sentímetra = 18,79 danskir þumlungar. Munurinn á þessu gildi og því, sem Páll fann, er að eins 2,34 millimetrar = rúmlega l2/3 (1,68) línu. Að minsta kosti virðist mega telja alveg víst, að hið sanna gildi hinnar fornu álnar sje einhvers staðar á milli hinna fundnu gilda, ekki lægra enn 48,909 sentímetrar (P. V.) og ekki hærra enn 49,143 sentimtr., og hallast jeg þó helst að hærra gildinu og hef það firir satt hjer á eftir. Eins og áður var tekið fram, táknar orðið öln eða alin upphaf- l)A árunum 18981902 var meðalhæð norskra niliða, 22 ára að aldri, 170,1 sentimetrar (Andr. M. Hansen, Landnám i Norge, 236. bls.). Enn þessir menn ern ekki fullvaxnir. Eftir Eanke, Der Mensch, Leipz. 1890, II 121. bls. eru Norðmenn ekki fullþroska, fir enn þeir eru hálfþrítugir. Ranke telur meðalhæð Skandinava" 17L35 sentímetra, enn af þeim eru Norðmenn hávaxnastir, Danir og Sviar talsvert lægri, og draga þeir meðaltalið niður á við. I Meyers Konversationslexikon undir orðinn Mensch eru Norðmenn taldir að meðaltali 172,7 sentimetr. á hæð, Sviar 170 sentímetrar og Danir 169 sentimetrar. Andr. M. Hansen segir i Folkepsykologi 2.-3. bls., að menn sjeu ifirleitt mjög háir í langhófða"-sveituin, 172 sentímetrar og þar ifir, enn talsvert lægri, undir 170 sentímetrar, í stutthöfða"-sveitum.