14 mislöng, og eru oft aukin að lengd hjá sömu þjóðinni, þegar fram liða stundir, bæði af samgöngum og viðskiftum við aðrar þjóðir og af því að ölnin er stutt mál og óhentugt, þegar þarf að mæla lang- ar voðir, eða því um líkt. Dæmi slíkra álnabreitinga eru deginum ljósari, bæði hjá oss íslendingum (hin forna öln, stikan, Hamborgar- alinin, hin danska alin) og hjá öðrum þjóðum. Englendingar hafa gamalt álnamál, sem nefnist cubit og skiftist eins og hin forna ísl. alin í 2 spannir (spans)1). Um það segir Murray í orðabók sinni (undir cubit 2), að það sje »mismunandi á ímsum tímum og stöðum enn vanalega 1822 enskir þumlungar«.2) Aður höfum vjer minst á glundroða þann, sem var á álnamálinu á Þískalandi, áður en metramál komst þar á. Því verður ekki sagt, að neitt verulegt sje á móti því, að alinin hafi að vísu frá upphaíi veríð jafnlóng meðal- mans öln, enn síðan verið aukin, sem svaraði 2 sentímtr. eða 3/4 þumlungs dansks. Líklegt þikír mjer, að aukning þessi stafi frá uppbót þeirri eða kaupbæti, sem vant var að gefa, þegar vaðmál voru mæld, og munum vjer víkja að því síðar. Áður höfum vjer drepið á þann stað í Heimskringlu og fieiri Noregskonunga sögum, sem sínir, að einn fótr (eða fet) var talinn jafn hálfri alin,3) og þá um leið jafn einni spönn. Ef alinin er jöfn 49,143 sentímtr. = 18,79 d. þuml., þá verður föturinn (fetið) = 24,572 sentimtr. = 9,4 d. þuml. Þetta kemur þó ekki heldur heim við náttúrlegt mál, því að meðal karlmannsfótur hjerlendra manna er 26,5 sentmtr. = 10,13 d. þl á lengd, eftir því sem greindir skóarar hafa skírt mjer frá, og ætti alinin eftir því að hafa verið 53 sentí- metrar eða 20,26 d. þl. Sínir þetta eitt með öðru, að náttúrleg mál er ekki mikið að marka, þegar finna skal lengd hinnar fornu álnar, þó að sjálfsagt sje að hafa þau til hliðsjónar. Hvergi er þess beinlínis getið í fornum ritum, hve margir þumlungar hafi verið í fornri alin, því að staðurinn í Búalögum hinum prentuðu, sem telur 20 þumlunga í alin, er eflaust ekki gam- all. Enn þó er það fleira enn eitt, sem bendir til, að forníslenskri alin hafi verið skift i 24 þumlunga. Grágás skírir frá því á einum stað, hvernig menn mældu þumlungum. I Kb. II 193. bls. standa þessi orð: Þat er lcatlamáls- ') C. Hage, Híindbog i handelvidenskab 438. bls. a) Fornrómversk alin (cúbitus) var ekki lengri enn 44,4 sentímtr. (tæpir 17 þuml. danskir), forngrisk alin (tc^u?) hjer nm "bil 2 sentímetrum lengri (46,2 sentí- metrar), egipsk alin þeirra lengst (52,4 sentímtr.). 3) Hkr. (F. J.) Har. harðr. 91. k. (III 205. bls.) Morkinsk. 117. bls. Fagrsk, útg. F. J. 58. k. 289. bls. Fras. VI 415. bls. Flat. III 394. bls.