32 raeð sér, að foksandi. Þar kom að Efsti-Bakki lagðist í eyði og Miðbakki líka. AltaE jókst sandurinn og Hólá næstum stífiaðist. Braut vatnið sér þá veg vestur í Þjórsá. Syðsti-Bakki stóðst enn, og auðugur maður er nefndur þar síðast Hafliði »ríki«, er var móður- faðir Þorleifs ríka á Háeyri. Eftir hans dag fór Syðsti-Bakki líka í eyði, og það sem eftir var af landinu lagðist til Bakka, sem bygður hafði verið upp úr Efsta- og Mið-Bakka. Það sem hér kemur máli við, er sögnin um að Djúpárbakki, sem Njála nefnir, hafi verið hér. Eg get ekki neitað því, að mér þykir sú sögn sennileg. Það er ekkert óviðfeldið eða óeðlilegt í því, að hugsa sér konuna, sem var búskörungur og viidi ekki missa sjónar af heimili sínu, sitjandi úti í Þykkvabæ, en bóndann á Bergþórshvoli. Þau voru saman þegar vildi fyrir því. Og hugsanlegt er, að þeir Grrímur og Helgi hafi komið frá Djúpárbakka brennukvöldið, er sagan lætur þá koma frá Hólum (eða Alfhólum?), þvi um Hóla hefðu þeir þá átt leið. Það gerir nú ekkert til. Satt er það, að jafnvel þótt Djúpárbakki sá, er Njála nefnir, hafi verið í Þykkvabæ, þá gat bær með sama nafni verið austur í Fljóts- hverfi fyrir því. Það gat verið Maríubakki. Og eins vel gat sá bær verið á nyrðri bakka Djúpár, þó nú sjáist ekkert til hans. En svo langt frá Djúpá, sem Rofhólsrústin er, sé eg ekki, að br með pvi nafni hafi getað verið. Eigi að geta sannfærst um það, þarf eg að fá sterkari rökremdir en mér eru kunnar sem komið er. Lundarkirkja var helmingakirkja móti Kálfafelli. Þar af má sjá, að í Lundarsókn hafa verið fleiri bæir enn einn eða tveir. Aðalsvæðið, sem sóknin gat náð yfir, hefir verið frammi á láglend- inu austur og suðaustur frá Lundi. Þar, en varla annarsstaðar, hefir verið nægiiegt svæði handa fleiri bæjum. En þar hafa Núps- vötnin seinna »hulið alt i aur og grjóti«; eins og vísan segir. Þau liggja nú yfir mestöllu þvi svæði og færa sig smámsaman norðvest- urávið. Góður spölur er þó enn ofan til þeirra frá Lundi, og bæði þar og frá mýrinni er nægur vatnshalli. Þau hafa ekki grandað Lundi. Það hefir Djúpá gert. Og vindurinn hefir hjálpað henni til þess. Þá sögn heyrði eg, að einhversstaðar þar, sem Núpsvötn renna nú, og helzt nokkuð ofarlega á því svæði, hefði bær verið, er Fagri- skógur hefði heitið. En liklega hefir sá bær pó verið í Lómagnúps- sókn, en ekki Lundar. Um það er enga vissu hægt að fá, heldur en um svo margt annað, sem hér að lýtur. Nófnin Slcógarliraun og Fagriskógur benda á, að hér hafi land verið skógi vaxið. Ef til vill hefir stórbýli á þessu svæði heitið: i Skógum og Skógahverfi verið kent þar við.