33 II. Fornleifafundur á Húsafelli. Á Húsafelli var nýlega bygt íveruhús og kjallari undir. Þá er graíið var fyrir honuni, varð á einum stað fyrir hvítleitt lag, svo sem l'/a al- langt, um 10 þml. breitt og frá 3 til 6 þml. þykt. Þyktina var raunar ekki hægt að ákveða nákvæmlega, því hún var mjög ójöfn, og að ofanverðu var þetta hvítleita efni moldarblandið. Lengdin er aðeins talin eftir því, sem í ljós kom: En raunar gat hún verið miklu meiri, því ekki var graíið fyrir annan endann. Efnið var hreint í miðjunni, þar var það hvítt, mjúkt og næstum þvalt. Því miður var það ekki hirt. Þykir einna líklegast, að búr- hylla með smjörhnullungum á haíi þar orðið undir rústum, er bær- inn hafi fallið, annaðhvort í landskjálfta ellegar hann hafi staðið mannlaus eftir Svartadauða og fallið er viðhald vantaði. III. Fornleifafundur í Kalmanstungu. I sumar (1910) var grafið fyrir hlöðu i Kalmanstungu. Þar varð á einum stað fyrir beinahrúga svo fúin, að beinin molnuðu er við þau var komið, en sum voru orðin að mylsnu. Heillegastir voru kjálkar með tönnum, eigi alllitlir. I þeim voru vígtennur. Eigi þektu menn þá, en gátu til að þeir væru úr svíni. A öðrum stað í gröf- inni varð fyrir hella mikil, svo sem l1/^ al- undir grassverði. Undir henni var hlaðin þró, kringlótt, nál. l1^ al. í þvermál og rúml. 3/4 al. djúp. Svo var hellan breið, að hún tók út yfir þróna. Var þróin alveg tóm. Undir henni var önnur hella, viðlíka breið og hin, og undir þeirri hellu var önnur þró, hér um bil jöfn hinni að vídd og dýpt. En hún var full af mold. Sú mold var i dekkra lagi. Þó voru hér og hvar í henni ljósleitir blettir, eigi ólíkir beinamylsnu. Undir þessari þró var beinharður malarbotn. Svo er þar alstaðar hér um bil 3 al. undir grassverði. Páll Þorsteinsson yngismaður á Húsafelli hefir skýrt mér frá þessum fornleifum. Hann er greindur og vel að sér, og hann vann bæði að kjallaragjörðinni á Húsafelli og hlöðugreftinum i Kal- manstungu. IV. Karlastaðir. Þess er getið í Árbók Fornleifafélagsins 1893, bls. 77, að við Kaldárbotna (upptök Kaldár) hjá Húsafelli í Hálsasveit hafi bær verið fyrrum, er munnmæli telji Karlastaði, sem Lndn. nefnir II, 1, sjáist þar bæj'arrúst með fornri lögun, en þó græn og grænt kring-