38 þá. Þeir hafa hvorki riðið til Varmalækjar né Langholts, sem nú eru næstu bæir, sinn á hvora hönd. A þeim dögum heíir verið bær i Kálfanesi, milli Flókadalsár og Geirsár. Þangað áttu þeir ekki langt úr leið og hefi eg hingað til talið vist að þar hafl þeir hlotið að lýsa vígunum. En i sumar (1910) var mér sagt i Borgarflrði að skamt frá Bæ væri eyðibýli, er héti að Reldnm og væri sagt að vígunum hefði þeir lýst þar. Fór eg þvi þangað og vildi sjá, hvort þetta væri líklegt eftir afstöðu. Og svo vildi eg líka sjá rústirnar sjálfar. Þær eru skamt norðaustur frá Bæ og næstum í leið fyrir þeim Snorra. Er þar mýrlendi á milli og keldur í, sem bærinn heflr verið kendur við. Á þeim dögum mun mýrin hafa verið þurt skóg- land nema keldurnar, og þær þó varla jafnblautar og nú. Nú verður að riða dálítinn krók til að komast frá Bæ að rústum Keldna. Rúst- irnar eru í mýrl^ndi og er það þegjandi vottur um, að þurlendara hafi þar verið áður. Rústirnar eru glöggvar og eigi mjög niðursokn- ar; enda mun jarðvegur ekki mjög djúpur. Eru rof skamt þaðan og sést þar, að hann er grunnur. Bæjarrústin er græn og hygg eg að hún hafi verið höfð fyrir stekk frá Bæ siðar. Þó hefir rústunum eigi verið breytt Bæjarrústin liggur hérumbil frá austri til vesturs og skiftist í tvær tóftir um miðgafl, sem ekkert er fullyrðandi um dyr á. Breiddin er um 3 fðm. út á veggi. Þeir eru þykkvir og þó mjög fallnir inn. Vestari tóftin er 4 fðm. löng og dyr á vesturenda. Eystri tóftin er 6 fðm. löng og eru dyr á austurgafli. Þar er suðurkampurinn áfastur við kringlótta tóft, sem er 3 fðm. í þvermál. Hún heflr dyr mót suðri og aðrar gagnvart austurtóftar- dyrunum. Út úr ganginum milli þeirra eru útidyr mót norðri. Eigi eru veggir hinnar kringlóttu tóftar alveg eins þykkvir og bæjarvegg- irnir. Sunnanuudir suðurvegg austurtóftarinnar lítur út fyrir að hafi verið útbygging nokkur. Þaðan gengur svo veggur vesturmeð suð- urvegg vesturtóftarinnnar. Eigi er hann nærri jafnþykkur bæjar- veggnum. Milli þeirra verður mjó tóft sem mjaltakvíar. Þessi granni suðurveggur þeirrar tóftar heldur svo áfram, sem túngarður. Verð- ur fyrst bugða r.okkur á honum og gengur hann síðan í norðvestur, þráðbeinn að kalla og nokkuð langur. Frá enda hans gengur þver- garður í norðaustur. Nokkrum föðmum fyrir austan hina kringl- óttu tóft er önnur rúst, 8 fðm. löng, er liggur nál. frá norðri til suð- urs. Hún hefir miðgafl með dyrum á 3 faðm. frá suðurenda, en útidyr eru á noiðurenda. Kann það að hafa verið fjós og hlaða. Austurkampur útidyranna heldur áfram til norðurs, sem túngarður, jafnlangur hinum sem til norðvesturs gengur, og endar, eins og hann, við norðaustur-þvergarðinn. Eigi er sá garður iengri en milli garð- endanna beggja, og er hann túngarður fyrir norðurenda túnsins.