42 snemma á 19. öld. Alitu menn það smiðjutóft, því þar fanst járna- rusl og sindur og ýmsir smámunir, þar á meðal tvær bronse-sylgjur, skálmyndaðar, sem Kaupmannahafnar forngripasafn eignaðist, og getur Kaalund þess (í Beskr. Isl. II. 323 neðanmáls) að þær séu þar og hvar og hvenær þær fundust. Eg vildi fræðast gjör um þessa rúst og spurði um þetta í Flögu í sumar. Fólkið, sem þar er nú, kannaðist að vísu við rústina, og hafði heyrt getið um að eitthvað lítilsháttar hefði fundist þar áður. En nú á seinni árum hefði þar ekkert fundist, enda rústin blásin burt að miklu leyti. Þó væri ekki mörg ár síðan að nálægt þeim stað hefði fundist axarblað. En það hefði verið svo ryðbrunnið, að burt hefði verið fallinn allur munn- urinn og hálft augað. Það var fullyrt, að þessi hlutur hefði verið sendur Forngripasafninu í Keykjavík. Þó þetta sé ekki nýr fornleifaíundur, þá áleit eg þó réttara að láta hans ekki ógetið. XIII. Athugasemdir við Arbók Fornleifafélagsins 1905. [Framliald frá Árb. 1907]. Þá er eg ritaði um landnám Gríms og leiði hans (Árb. '05, 38) leiddi eg likur að því, að Ketilbjörn gamli mundi hafa tekið undir sig gilda sneið austan af landnámi Gríms og þar með mundi Hest- fjall hafa fylgt; það mundi báðum hafa þótt eigulegt. Hefði eg þá vitað það, sem eg veit nú, að uppi á Hestfjalli er dalverpi, sem heitir Orustudalur, þá hefði eg getið þess og leyft mér að setja það i samband við líkur þær, er eg færði til, því engin sögn er um til- drög til þessa örnefnis. Og mörg örnefni frá landnámstíð halda sér óbreytt enn í dag. Það væri í beinni samhljóðun við skoðun mína í Árb. '05, að slá fram þeirri tilgátu, að mönnum þeirra Gríms og Ketilbjarnar hafi lent saman i Orustudal, barist þar og Ketilbirni veitt betur. Auðvitað má segja, að tildrög örnefnisins geti verið alt önnur. Vist geta þau það. En meira verður þá heldur ekki sagt. Full vissa fæst náttúrlega ekki. En bendingin, sem örnefnið gefur, er þó heldur með mínu máli en móti, ef nokkuð er. Þess vil eg nú láta getið, er eg vissi ekki 1905, að í túninu á Grafarbakka i Hrunamannahreppi er örnefni, sem heitir Hofin. Graf- arbakki stendur, eins og kunnugt er, á austurbakka Litlu-Laxár þar sem Gröf er vestanmegin hennar. í Gröf bjuggu höfðingjar í forn- öld: Þorsteinn goði og Bjarni spaki, son hans, og hafa þeir óefað átt landið báðum megin árinnar. Gátu þeir því haft hof sitt fyrir