Gamlir legsteinar. Legsteinar á Mosfelli. Rannsakaðir 13. VII. 1909. I kirkjugarðinum á Mbsfelli i Mosfellssveit eru enn sýnilegir nokkrir gamlir legsteinar og brot. Hér skal lýsa og tilfæra áletranir á þremur, þeim elztu: Nr. 1. Jarþrúður I»órólfsdótter. f 1606. Steinn þessi er í tveím hlutum og mun vanta á milli. Efnið er mjög gljúpt hraungrýti. Efra brotið er að lengd 90 sm., hið neðra 58; br. 2728 sm. á báðum; þykt um 14 sm. Steinninn er sléttur og tilhöggvinn. Einföld strik eru milli línanna og umhverfis letrið, og ennfremur utan á hliðunum um 2,5 sm. frá efri brún. Á efra brotinu eru 10 línur og á hinu 7. Letrið er latínuletur, upphafs- stafir, hæð 56 sm. E-in eru öll með epsilon-laginu, sbr. Engeyjarst. Ritháttur hinn venjul. þeirra tíma, sami og á flestum öðrum áletr- unum sem tilfærðar hafa verið í Árb. áður frá 17. öldinni. í orð- inu AME (þ. e. amen, 6. 1. að neðan) er n-hljóðið táknað með striki yfir næsta hljóðstaf á undan, svo sem altítt var, einkum í endingum. Merkið /, sem táknar venjulega og (eiginl. et, á latínu), táknar hér víst o s. frv. (etc, þ. e. et cetera á latínu, svo að c vantar i raun- inni). Á milli orða eru alstaðar 3 deplar hvor upp af öðrum svo sem hér er prentað. Á neðra brotinu er efsta línan orðin ólæsileg; vottar fyrir að í henni hafi staðið 5 stafir. Brotin falla ekki saman, enda sést á letrinu, að nokkurn hluta af steininum vantar á milli þeirra. Efra brotið: HIER i H VILER : I CHRIST 0 i IARÞ RVDVR i