50 um á Álftanesi 156916181), hálfbróður Guðbrandar biskups. Þór- ólfur, faðir Jarþrúðar, og Sigmundur, er tók biskupsvígslu til Skál- holts 1537, bróðir hans, voru synir þeirra hjóna Eyjólfs bónda Jóns- sonar á Hjalla í ölfusi og Ásdisar Pálsdóttur, systur ögmundar biskups2). Móðir Jarþrúðar var Margrét dóttir Erlends lögmanns Þorvarðssonar. Margrét dóttir þeirra Jarþrúðar og síra Jóns í Görð- um giftist Gísla lögmanni Hákonarsyni og þeirra dóttir Kristín gift- ist Þorláki biskupi Skúlasyni á Hólum, dóttursyni Guðbrandar bisk- ups, og átti með honum þá Gísla Þorláksson Hólabiskup og Þórð Þorláksson Skálholtsbiskup. Vigfús sýslumaður faðir Jóns biskups á Hólum var og sonur þeirra Margrétar og Gísla lögmanns, og margar merkar ættkvíslir má rekja til Jarþrúðar upp og ofan. Ártalið neðst á steininum er að líkindum andlátsár Jarþrúðar, og ef til vill jafnframt það ár er grafskriftin var gerð. Það er at- hugavert, að hún skuli hafa verið jörðuð að Mosfelli, en ekki heima í Görðum. Til þess er liklegust sú ástæða, að hún hafi andast (máske í kynnisför) hjá Þorvarði bróður sínum, sem þá bjó á Suður- Reykjum í Mosfellssveit. Nr. 2. Þorvarður Þórólfsson. Steinn þessi er grágrýtisdrangur ósléttur, hæstur um miðju, toppmyndaður í efri endann. Hann er 192 sm. að lengd, 39 sm. að breidd um miðju, en 20 sm. til endanna; þykt um miðju 22 sm. hér um bil. Einfalt strik er milli línanna og umhverfis áletrunina, sem er í 18 línum yfir þveran steininn, svo sem venjulegt er á breiðum steinum. Á Baulu steinum eru leturlínurnar langsetis. Aletr- unin er með latínuleturs-upphafsstöfum mestmegnis; t-in í 3. 1 eru smáleturs-t, og sömul. er æ-ið í 10. 1.; ý-ið í 14. 1. er og helzt með sömu gerð, sbr, Garðast. nr. 1 (Árb. '04) og nr. 8 (Árb. '06). F-ið í 17. 1. er með engilsaxneskri gerð svo sem altítt var hér á landi. Pin í 18.1. eru opin að ofan svo sem á Garðast. nr. 1 (Árb. '04) og bundin saman. Sömuleiðis er H og E bundin saman aftast í 5. 1. Ef til vill á einnig að skilja það svo, að skástrik er sett yfir legg- inn í L í 17. 1. ofantil og upp hægra megin, sem að þar sé L og y bundin saman, þótt eins líklegt sé, að y-ið hafi alveg gleymst og að skástrikið tilheyri L-inu; lík L sjást á mörgum gömlum legsteinum. ') Sbr. Prestatal Sv. N. ') Sbr. Biskupa-annála Jóns Egilssonar, kap. 89 og 44, Safn til sögu Isl. I. bls. 67 og 74; sbr. ennfr. Bisk. sögur II, bls. 294 og 296, og ættartölurnar s. st. bls. 303 og i Isl. árt., fylgiskj. I og IV.