62 hinum, sem er sunnanvert við hana (bæjarhúsahólnnm), þarstendur bærinn nú og hefir án efa staðið síðan síra Benedikt ritaði sóknar- lýsinguna 1842. Þó getur verið að annað nýbýlið, er þau voru tvö, hafi verið bygt á fjárhúsahólnum og hafi tóftin þá orðið ógleggri við það eða að f járhús er nýbýlismenn reistu þar, hafi orðið til að spilla hoftóftinni þar; orð síra Benedikts eru ekki nægilega ljós tii að taka af allan vafa um það, en þau benda helst til að hofið hafi staðið á bæjarhúsahólnum. TJm Hóla i H.jaltadal, kirkjunaþar og kirkjugripina værifull ástæða til að rita allýtarlega, en sökum rúmleysis í Arb. verður það að bíða að sinni. Sig. Vigfússon hefir skrifað um flesta kirkjugrip- ina, er þar voru 18861). Af gripum þeim er þar ræðir um eru þessir eftir nú á Hólum: Nr. 1, altaristaflan; nr. 8, krossmarkið mikla; nr. 9, krossmark annað minna og 2 mannamyndir útskornar með því; nr. 10, skirnarfonturinn; nr. 24, minningarspjald með grafskrift yfir frú Ingibjörgu Benediktsdóttur; nr. 26, prentuð mynd af Paul Gaimard. Allir hinir gripirnir eru nú komnir til Forngripasafnsins, að tveim undanteknum þó: nr. 3, sem verið hefir dýrmætur gripur, korpor- alshÚ32) fornt, svipað því er Fgrs. á frá Skálholti8); sá gripur er nú ekki á Hólum og er mér ókunnugt um hvað um hann hefir orðið; og nr. 22, máluð mynd af Ulrieh Christian Gryldenl^ve, stiftbe falingsmanni, gerð af honum á unglingsaldri, máske einmitt er hann var gerður að stiftbefalingsmanni hér, hann var þá 14 ára. Þessi gripur er vís, er hjá fyrv. amtmanni Jul. Havsteen í Reykjavík. Við lýsingar Sig. Vigf. á gripum Hólakirkju er ýmislegt að at- huga, skal það þó ekki til tínt hér viðv. þeim gripum, sem komnir eru til Fgrs., nema þess skal þó getið að nr. 21 er ekki mynd Jóns læknis Steinssonar, heldur Kristjáns konungs 5., ágætt verk eftir D' Agar, en nr. 23 er mynd Jóns læknis Steinssonar. Konumyndirn- ar, er S. V. talar um að séu á nr. 2, altarisklæðinu, eru englamyndir, ekki með lúður, heldur reykelsisker, og það sem yfir myndunum stendur er angelus d[omi]ni og angel[ue\. Viðv. gripunum, sem enn eru í kirkjunni á Hólum, skal að þessu sinni fátt eitt tekið fram af því, sem athugnvert er við lýsingu S. V. Hann lýsir altaristöflunni miklu all nákvæmlega, einkum búningi myndanna og afstöðu þeirra innbyrðis og má af lýsingunni einni ráða mikið i hverja menn myndir þessar eigi að sýna, þótt hann láti þess ógetið. Fremsta ') Sjá. Arb. '88-92, bls. 90 o. s. frv. !) Korporaltöskurnar (bursæ corporalium) hafa verið kallaðar korporalshús hér á landi, t. d. einmitt i úttektunum á dómkirkjunum, 8) Sbr. Arb.' 09, bls. 50-51,