64 standa: HETHS og og IGD1) tákna nöfn þeirra. Svo er og. Kross- markið, þ. e. Kristslíkaminn sjálfur, mun vera gamalt, en myndirnar, sem settar hafa verið á þvertré undir. sín hvoru megin, eru miklu yngri. Þær eru bersýnilega af presti eða biskupi og frú hans og stafirnir neðan undir benda einmitt ótvírætt á hverja myndirnar eiga að tákna. H. E. TH. S. er = Herra Einar Thorsteinsson og I. G-. D. er" = Ingibjörg Gísladóttir. Þetta er því eins konar minn- ingarmark yfir Einar biskup og fyrri konu hans; hún dó 1695 og hann árið eftir. Myndirnar af þeim því frá því um 1700. Skírnarfonturinn stendur nú (síðan 1886) á miðju kórgólfi og ætti að flytjast. Það er engum efa bundið að hann er eftir Guðmund smið Guðmundsson í Bjarnastaðahlíð; en þótt hann sé að því leyti íslenzkur, og líklega gerður úr íslenzkum steini, um það eru ýmsar sagnir hvaðan sá steinn sé , þá er stíllinn allur á verkinu útlendur barok-stíll (ekki »rokokko«-stíll). Guðmundur lærði smíði erlendis. Eftir hann ætla eg sé ef til vill margt fleira hér á landi, t. d. hygg eg að eftir hann sé legsteinninn, sá er Gísli byskup Þorláksson setti yfir fyrstu konu sína, Gróu Þorleifsdóttur, og sjálfan sig. Hann er úr svipuðum steini og skírnarskálin, og stíllinn í skrautmyndunum á steininum svipaður. Útskorin altaristafla úr eik, sem nú er í Vídalínssafninu (á Fgrs.) bendir að mörgu leyti á Guðmund sem höfund sinn. S. V. hefir misskilið mynd þá er hann segir tákna fæðinguna; sú mynd táknar einkar bersýnilega umskurnina. Letrið er prentað að ýmsu leyti rangt í Arb. '8892, bls. 98, t. d. Sogu fyrir f'sogn (þ. e. fyrirsögn). Auk þessara gripa, er nú voru taldir og S. V. lýsir, á Hólakirkja ýmsa allgóða gripi, svo sem kaleik og patínu, gylt, virðast að mörgu leyti forn, lagið er rómanskt, en annað ásigkomulag bendir til að þau sé ekki gómul; patínudósir góðar úr sílfri, stimplaðar með ráð- stofust, Khafnar 1726. Ljósastjakar 4, úr kopar, gamlir, eru á alt- arinu; einn þeirra er stærstur, h. 65 sm., armar 3, lengd út að ljósi 25 sm., þverm. stéttar 25 sm. Á stéttina er það letrað á latínu að herra Gísli biskup Þorláksson hafi gefið stjakann Hólakirkju að gjöf árið 1679. I kórnum hangir nú að sunnanverðu myndaspjald úr tré með útskornum og máluðum myndum af Kristjáni 6. og drottningu hans; andspænis því hangir minningarspjald frú Ingibjargar Benediktsdóttur, með mikilli grafskrift eftir mág hennar, Þórð biskup Þorláksson í Skálholti. þannig; IÖT í Arb. '8892, er víst prentvilla.