Skýrsla um viðbót við Forngripasafnið og þau söfn, er þvi eru sameinuð, árið 1909. [Tölumerki hlutanna, dagsetning við móttöku þeirra og nöfn þeirra manna, er þá hafa gefið suma, eru prentuð framan við]. 5665. 5/i 5666. 5669. 5670. 5671. 5/i 5667. 14/i 5668. 10/x 19/2 19/2 V, Forngripasafnið. Skautkragi og treyjuborðar með silfurbaldýringu, af gamla búningnum, en hefir verið fest saman og haft á skauttreyju með nýja laginu; vandað verk. Skauttreyju-borði og -uppslög með gyltri silfurbaldýr- ingu, af nýrri búningnum, með fallegu verki og mikið í borið. Rúmfjöl útskorin. í hring á miðju er ih s samandregið og í hringum út við endana eru blóm, en milli hring- anna er hið alkunna vers: »Vertu yfir (á þessari fjöl stendur »under«) og alt um kring« o. s. frv., útskorið með höfðaleturs- og villileturs-blendingi; aftan á er með latínuletri »anno 1736« og nokkrir villiletursstafir. Austan úr Hvolhreppi. Silfurstaup all-vítt með grefti á stétt, stimplað S Th 1825. Úr eigu Jóns Jónssonar, Lambeyri í Tálknafirði. Guðm. Ólafsson, Lundum í Borgarfirði: Hringja úr bronzi, ekki heil og er þornlaus; sexhyrningur í miðju og hafa verið sex bogar umhverfis með fornu munka- letri. Af bogunum er einn eftir heill og tveir hálfir; á þeim heila stendur »mater«. Fundin í moldarfiagi á Lundum. Sami: Hnappar tveir úr bronzi, kræktir saman með krók, einskonar nisti. Fundnir sama staðar. Beizlisstengur úr járni og kopar, með einkennilegu lagi og verki. Úr Skagafjarðardölum. Munu vera út- lendar að uppruna.