73 5672. V3 Lýsislampi, með kúlum úr eiri og upphöldum úr iárni. 5673. Va Gleraugnahús úr látúni, með upphafsstöfum Sigurðar Jónssonar úr Kolbeinsdal í Skagafirði. 5674. 15/3 Hökull úr ullar- og lín-vefnaði með rauðum, bláum og hvítum rósum; á honum er ártalið 1672. Mun vera frá Alftártungu-kirkju á Mýrum. 5675. Rumfjöl, skorin, einfaldur rósastrengur annars vegar. 5676. Rúmfjöl, skorin, tvöfaldur rósastrengur á og íhs á miðju. 5677. Rúmfjöl, skorin beggja vegna, með upphafsstöfunum EGS og IHD beggja vegna, og ártalinu 1856. 5678. Snældustóll, tvöfaldur og allur útskorinn; á honum stendur með höfðaletri: ingibiorg \ pals | dottir | a \ stok (þ. e. Ingibjörg Pálsdóttir á stok[kinn]) og ártalið 1851. 5679. Öskjur úr tré útskornar á loki og á því miðju upphafs- staflr hjóna(?): OES og 0 Þ D (?). Neðan á botninn hefir seinna verið skorið S og IMD neðan undir það. 5680. Smádósir úr skjaldböku, fóðraðar að innan með látúni og með látúnsböndum um brúnirnar að utan. Innan á lokinu er gamalt búmerki og ártalið 1603 krotað, en á botni að neðan I 0. 5681. Forstöðum. safnsins: Lóð úr grágrýti, allvel tilhöggvið, ferstrent og með skorum á brúnunum; járngjörð hefir verið utan um og blýi hefir verið rent upp i að neðan- verðu. Líklega reizlulóð. Fundið af gef. í Þingholtsstr. í Rvík 14. s. m.; hafði komið þar upp við pípnagröft. 5682. 21/3 Sami: Leggur úr sauðkind og nokkrir beinmolar, mjög fornlegir; teknir af gef. úr tóptinni í Vígishelli (í Surts- helli) sumarið 1903. 5683. Zi/3 Skóstýll úr kopar; átt hefir amma gamallar konu einn- ar, sem nú er um nírætt. 5684. 30/3 Altarisdúkur sá frá Saurbæjarkirkju á Kjalarnesi, er nr. 866 var á áður og nr. 2539 síðar, sbr. skýrslu II, 1 og Árb. '8081, bls. 70. Afh. af Eyjólfi bónda Runólfs- syni, Saurbæ. 5685. 3/4 Pípulykill stór úr járni, með hjartamynduðu handfangi; fundinn djúpt í jörðu fyrir neðan kirkjugarð á Stórólfs- hvoli vorið 1908. 5686. '/4 Hökull sniðinn og saumaður úr bláu silkiatlaski, alsettu útsaumuðum blómum 0. fl. með gullvír og silki; er sá útsaumur eldri en hökullinn og gerður af mestu snild og mjög íburðarmikill. Er hökullinn var búinn til hefir 10