79 5788. 10/7 Snúður úr dökkum steini með mörgum þráðarskorum; fundinn sama staðar. 5789. Höfuð af nælu eða stíl(?), úr kopar, með verki; fundið saina staðar. 5790. Ádráttur úr kopar af beizli, með verki. 5791. Skráarlauf úr kopar, steypt, með laglegu verki, íslenzkt. 5792. Spenna(?) úr kopar, með útlendu verki. 5793. Baksturtengur fundnar á Bíldudal; samlokurnar úr kop- ar með rósum, er koma fram upphleyptar á kökunum, sköftin úr járni. 5794. la/7 Erlendur Magnússon gullsmiður, Keykjavík: Kotrutafla allstór, íslenzk, rend úr hvalbeini. 5795. 16/7 Astríður Þorsteinsdóttir, húsfreyja á Húsafelli: Skotrokk- ur, með venjulegri gerð, rendur að sögn af síra Snorra á Húsafelli. 5796. 17/7 Moritz Halldórsson læknir, Park River, N. D.: Úlpa blá, prjónuð, með silfurhnöppum að fram og á ermum. Att heflr fyrrum Jónatan Jónatansson í Vikum á Skaga og afl hans þar áður; sonarsonur Jónatans, Jón Hilman í Ameríku, nú um sextugt, átti úlpuna síðast. Mun hún því vera um 150 ára. 5797. 20/7 Stefán Jónsson, Asi í Hrunamannahreppi: Öxi gömul, fundin síðastliðið vor í jarðföllum hjá Ási. 5798. 28/7 Stokkur með renniloki, málaður af síra Helga Sigurðs- syni á Melum með rósamálverki á hliðum og göflum, lokið nýrra. 5799. öskjur litlar, íslenzkar, sporöskjulagaðar; lok með út- skurði. 5800. Strokkur með bullu og loki; notaður mjög lengi í Hof- staðabúi í Borgarfirði og síðan í Leirárbúi í Leirársveit. 5801. Blóðtökubíldur lítill úr kopar, íslenzkur, austan úr Sel- vogi. 5802. Reizla mjög lítil úr kopar, frá s. st. 5803. 29/7 Altaristafla frá Hálskirkju í Hamarsfirði, stór og með íburðarmiklu skrauti, að mestu leyti í »barokstíl«. Hún er samsett af tveim málverkum, Tcvöldmáltíðin neðst og og er sá hluti töflunnar eldri, en síðar hefir Ttrossfesting- unni verið bætt ofaná og súlum og vængjum beggja vegna. Málverkin léleg og mjög gölluð, útskurðurinn all-góður.