8i 5823. l2/8 Eauðagjallstykki fáein. Gripir þessir, 581823, voru sendir safninu að undir- lagi Finns próf. Jónssonar; munu þeir flestir hafa kom- ið upp við gröft i Ljáskógum skömmu áður. 5824. u/8 Jósef Kr. Jónsson, Grindavík: Vídalíns húss-postilla, 8. útg. Hólum 1767. Innb. í skinnband með gröfnum spennum. 5825. 19/8 Ebenezer Guðmundsson, Eyrarbakka: Signetshringur úr látúni með stöfunum B. P.; jarðfundinn. 5826. Sami: Hempuparalykkja úr kopar, steypt, með gagn- skornu verki. 5827. 24/8 Fornmenjavörður (afh.): Tvö mannsbein, uppblásin í gamalli dys í Litluhólum rétt hjá Hruna, úr dys annars- hvors þeirra Péturs Spons eða Jurens Finchs (sbr. Safn t. s. Isl. I, bls. 71 og 666), sem þar voru dysjaðir 12. ág. 1539. 5828. Lárus Benediktsson, Reykjavík: Rúmfjöl, skorin að framan, rósakringla á miðju og tvöfaldir strengir til beggja enda eftir miðjunni og höfðaleturslínur beggja vegna við þá; að ofan standa nöfnin Benedíkt Þórðar- son og Ingveldur Stefánsdóttir, og ártalið 1841 á miðju, en að neðan stendur: »Hvíld er þægust þjáðum, því hún hressing til bír«. 5829. 26/s Kistill, útskorinn á hliðum, göfium og loki, málaður grænn. Upphafsstafirnir J og E í kringlu á miðju loki. Vestan úr ísafjarðarsýslu. 5830. Kvenkragi með flaueli, baldýraður með gullvír og silf- urvír. Austan úr Meðallandi. 5831. Kvenkragi með svörtu flaueli, baldýraður með silfur- vír. S. st. að. 5832. 27/8 Signetshringur gamall úr látúni, með sporbaugsmyndaðri signetsplötu, sem á er fugl með orm i nefinu og J. V. sínu hvoru megin; fyrir framan J er ennfremur hákarlsmynd. 5833. 28/8 Fru Valgerður Melsdóttir, nú í Gaulverjabæ: Látúns- millur tólf gamlar, steyptar, allar eins, litlar. 5834. Glóri, nýsmíðaður eftir uppdrætti og fyrirsögn Sighv. f. alþm. Árnasonar. Hann er einskonar ljósáhald, svip- aðastur kolu, er úr tré, en með járnbroddi aftur úr skaftinu og látúnspípu fyrir kveikinn upp úr botninum í miðju. Botninn er flatur að innan og neðan. 11