84 5864. 25/9 Guðbr. Jónsson, Reykjavík: Ritblý gamalt, þ. e. lítil tréstöng, gul, með blýbroddi framan á. 5865. 14/10 Klukkubrot úr kopar, fornt; jarðfundið í kálgarði vorið 1896 á Holti í Mýrdal. Sbr. Árb. 1909, bls. 23. 5866. 15/10 Skeifa, fimmboruð, með dragi; fundin í jörðu á Skag- nesi í Mýrdal. 5867. 21/10 Sverð, gamalt og ryðétið, eineggjað, hjaltalaust, gat er á tanganum; oddurinn eyddur af. Fundið á eyri einni í Þjórsá vorið 1909. 5868. 26/w Rennibor með steinhjóli, nýsmíðaður að fyrirsögn Sighv. f. alþm. Arnasouar. 5869. 27/10 Jámmél með hringum; hafa verið slegin ferstrend og hringarnir flatir; úr járni. 5870a-d. Hnífblöð fjögur, lítil, með tanga hvert; mjög ryðbrunnin. 5871. öngull lítill, með krók á enda, úr járni. 5872. Nál(?) úr járni; virðist hafa verið með mjög löngu auga. 5873. Nál úr beini, með auga; mjög eydd. 5874. Ró úr járni, með gati, ferhyrnd. 5875a-e. Naglar úr járni, fimm, sumir eða allir hófnaglar. 5876a-b. Kengir tveir úr járni. 5877. Járnbútar um 30 að tölu, litlir og ryðétnir. 5878a-f. Brýnisbrot 6 að tólu; 2 úr hein, hin sandbrýni. 5879. Steinsnúðsbrot lítil 3, rauðleit. 5880a-b. Steinar tveir litlir með gati, mjúkir og rauðleitir. 5881a-d. Greiðubrot 5 lítil úr beini. 5882. Snúður úr beini (hnútukúla) með viðu gati; mjög eyddur. 5883. Snúður úr beini með mjóu gati, mjög eyddur. 5884 ^36 Gangsilfur fornt, sjóður, alls 36 gripir, er vega samtals 304 gr. 1. er brot af hringju með miklu verki; 2.3. brot af menjum; 4. brot af armbaug; 5. lítið brot með með verki; 6. slöngubaugur litill; 7.11. litlir hringar óvandaðir; 12.36. silfurbútar og brot, sívöl, ferstrend, undin og gárótt, sum bein, flest bogin, mjög misjöfn að lengd, gildleika og þyngd. Gripirnir 58695884 *-u eru Sandmúlafundur II; sbr. Árb. 1909, bls. 2431 m. myndum. 5885. Skafi(?) úr j'árni, með tanga. Fundinn á Helgastöðum, þar er svo heitir, i Króksdal haustið 1909. 5886. Hnífblað lítið úr járni, með tanga; ryðétið. Fundið sama staðar og nr. 5885.