94 Tvær þunnar fjalir með rayndum og myndaletri máluðu á, brot (úr múmíukistu ?). Andlitsmynd skorin úr tré og máluð, að likindum af líkkistu. Tveir hlutar af yzta múmíubúningi, höfuð og fætur, málaðir. Sjö litlar múmíumyndir, 3 útskornar úr tré, fornar, 4 úr gipsi, allar málaðar. Mannslíkun þrjú, eitt standandi, úr bronsi, annað af konu, sitjandi, þriðja af manni, er situr og slær lýru; þau tvö úr leir, gleruð utan. Öll lítil. Goðamyndir þrjár litlar, standandi, úr leir og með bláum glerungi að utan. Helgimynd lítil ur bronzi af dýri með spörshöfði, kattarfótum og krókódílshala. Anúbismynd úr bronzi, lítil. Mynd af ketti (helgimynd), sitjandi, úr bronzi Mynd af spörfugli (helgimynd) útskorin úr tré og máluð. Mannshöfuð tvö lítil, annað úr gipsi, hefir verið gylt, hitt óvandlega hnoðað úr leir. Tvö brot af bronziplötu með myndaletri. Bronzimynt, faraó annars vegar, en hins vegar Sílen. Bútur af vatnspípu úr blýi. Lítill steinn. Ein skál, ein kanna og 2 flöskur úr hörðum, fíngerðum, svörtum leir. Ein skál, þrjár könnur, ein flaska og eitt ker úr rauðum leir sams konar. Stór kanna (»vasi«) úr rauðum leir. Eins konar áhald (til að þvo með?) úr svörtum leir, gert í líkingu við krókódíl. Tvö sams konar áhöld úr rauðum leir, með likri gerð. Enn eitt sams konar áhald úr rauðum leir, í líkingu við hund(?). Allir eru gripir þessir með útskurði i líkum stíl og með svipuðu verki. Fimm flöskur úr fíngerðum, bleikum leir, allar áþekkar, miklar um sig að neðan, hnöttóttar með flötum botni og hálslangar, með töppum í; allar málaðar skrautlega með ýmsum myndum að ofan. Þrjár líkar skálar með sviplíku verki og síðast nefndar flöskur. Tvær flöskur úr ljósgráum leir, allháar. Ein minni úr svipuðum leir, hnöttótt að neðan, flatbotna. Fjórar flöskur úr líkum leir, en dökkgráum; skrautlega málaðar, með skarabeamyndum o. fl.; tvær og tvær með líku lagi, mismunandi að stærð.