95 Þrír lampar úr rauðleitum leir, einn þeirra fyrir tvo kveiki, en hinir tveir einkveikjaðir. Vatnsker úr rauðleitum leir grófum, hnöttótt, með víðu opi, mjög sprungið. Litil fiaska niðurmjó úr rauðleitum leir, grófum. Leirstykki kringlótt, flatt að ofan og myndaletur á fletinum. Lítil flaska («vasi«) úr dökkleitum leir með einkennilegu, grófu verki. Lítil kanna úr sams konar leir og með svipuðu verki. Lítil krukka úr alabastri. Tvær litlar flöskur úr alabastri, önnur belgmynduð, mjög brotin. Litill sívalur hlutur úr leir með blágrænum lit að utan (verndar- gripur?). Ferskeytt plata úr leir með bláum glerungi að utan og gagnskornu verki (verndargripur?). Skarabe með útþöndum vængjum, úr leir með bláum glerungi. Tvær litlar sitjandi goðamyndir og fjórar standandi, úr leir með bláum og grænum gierungi. Flöskumynd og trémynd úr leir með blágráum glerungi. Þessir níu gripir munu allir vera forn-egipzkir verndargripir. Tvö steinasörvi, fremur grófgerð, perlurnar úr leiri, gleri og steinum. Steinasörvi með mjóum tölum, sívalningum (pípum) og perlum, blátt. Tvö steinasörvi úr fíngerðum festum, sem á eru perlur, gerðar úr gleri, steinum og gulli. Kinga úr steini, brúnleitum, vel skygðum. Hálsband, armband, lokkar og næla, alt úr gulli og smelt með marg- litum glerungi; að utan eru mótaðar ýmsar myndir, en að innan grafnar, alt í forn-egipzkum stíl. Gripir þessir heyra saman og eru settir fornum skarabeum, samtals 16. Sex hnýtisprjónar með fornum, líkum skarabeum úr leir, steini og gulli, greyptum í gullumgjarðir. Þessir gripir allir, nær undantekningarlaust, virðast vera egipzkir og fornir eða gerðir í líkingu víð forngripi. Skál, stór, úr messing með gröfnu verki alt um kring að utan og gagn- skornu uppi við barmana; þunnar silfurræmur festar á að utan. Diskur (bakki) úr messing aldrifin með ýmsum myndum og arabisku(?) letri, gamallegur. Messingarbolli, allur grafinn dýramyndum og arabisku(?) letri að utan, með stút, loki og löngu koparskafti, sem sett heíir verið á siðar.