96 Flaska, 2 bikarar og diskur (bakki) úr kopar, silfrað og smelt (kol- melt), alsett rósaskrauti að utan. Þrjár körfur riðnar úr tægjum og strái, nýlegar, allar með loki; ein stærst og er í henni strútsegg, hinar fremur litlar og þrju litil egg í annari þeirra. Tágakarfa, gömul og gölluð, með loki. Hnotnaska, með gröfnum myndum á að utan. Hnotskálar tvær, misstórar, með gröfnum myndum til skrauts að utan. Skrautband með skúfum, úr silki- og silfur-þræði. Mittisskýla úr skinnræmum, alsett smáskeljum til skrauts, og með löngum, hangandi skinnræmum. í Markúsarkirkju Forngripa- Mynd, allstór, máluð á pappír með vatnslitum: á Feneyjum. Merkt 1882 Bunney 245. Mynd, nokkru minni, máluð á léreft með olíulitum: kaupmaðurinn. Merkt Jos(?) Munsch, Munchen. Mynd, lítil, máluð á tré með olíulitum eftir Francesco Mazzola, kall- aðan Parmigiano (15031540): María mey, Jesús sem barn og engill. Mynd, lítil, máluð á tré með olíulitum: ítalskt hús. Merkt F. Campo. Venecia 1880. Mynd, lítil, máluð á tré með olíulitum: Stór bygging með hvelfdu þaki, mjóir turnar, næst hátt tré og runnar, ítalskt landslag(P). Mark ógreinilegt: .....Virtienni(P). Tvær myndir, málaðar með vatnslitum á pappír: Sjór í logni, skip og strendur; um dag önnur, sólarlag hin. Mark ógreinilegt: W. Gedney Burne(?). Venice. Mynd, máluð á tré með olíulitum: Lítil stúlka og hundur horfa í eld á arni. Merkt: G. Laeverenz. Miinchen. Eftirmynd gerð af G. Rocchi af mynd eftir Sandro Filipepi, er kall- aður var Botticélli (14461510): Þokkagyðjurnar. Úr »Vorinu«. Eftirmynd gerð af sama af mynd eftir Fillippo Lippi (um 1406 1469): María mey tilbiðjandi sveininn Jesús, tveir englar bera hann á höndum sér. Eftirmynd ómerkt af mynd eptir Francesco Raibolini, er kallaðist Francia (14501517): Stefán frumvottur; hann knýpur á kné og hefir samlagðar hendur á brjósti. Á myndinni stendur: Vincentii Desiderii votum Francie expressum manu. Þessi eftirmynd er að líkindum einnig eftir Gr. Rocchi. Litmyndir af sex Indíónum, gerðar eftir ljósmyndum.