Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Blaðsíða 65
65
uppi við húfuna 18 sm. — Slétt og skrautlaus. Sprungin
og hefir verið sagað upp í rifuna til hljómbætis. Fom-
leg, frá 14. öld. ef til vili. — Frá s. st. og síðasta nr.
— Tréramböld eru fest með járnböndum á krónuna,
1. 79 sm.
6170. 8% Ljósahjálmur steyptur úr kopar, hefir verið með 2 kröns-
um af ljósaliljum, 6 í þeim neðri, 2 þeirra vantar og 1
er brotin, en 4 í þeim efri og vantar þær allar, nema
kertisskál er með af einni þeirri; bilið milli gagnstæðra
ljósa í neðra kransi er um 45 sm. Leggurinn er rend-
ur, með hnúðum; neðan í er ljónshaus (sbr. 3922) og
halda leikur í kjaftinum, gerð sem 2 kynjafiskar. Uppi
yfir er flegin örn (sbr. 6159) og hefir verið ljósalilja á
bringunni beggja vegna. Hæð alls 53 sm. Frá s. st.
6171. — Eftirmynd úr furu af breiðfirðsku flutninga- og hákarla-
legu-skipi, 1. 177 sm., br. um sigluþóftu 56,5 sm., með
barkaþóftu (lausri), hálsþóftu, sigluþóftu, miðskipsþóftu,
austurrúmsþóftu og bita, með vindingskeipum fyrir aftan,
og fiskifjöl undir, en alls eru 6 keipar í hvorum há-
stokki. — Hástokkurinn er negldur ofan á borðstokkinn
og slíður (listi) er umhverfis. — Hnífilkrappar og stafn-
lok eru á báðum stöfnum. Ofan á báðum endum hverr-
ar þóftu (nema barkaþóftunnar) er knélisti (kollharður),
en undir endanum langýsur eftir öílum böndum og
undir miðri þóftu er snælda (stilkur). Taumastjórn er
á stýrinu, en ekki sveifarstjórn, sem þó tíðkaðist frem-
ur á stórum skipum, er taumunum fest í stjórnvölinn.
Ein sigla er miðskipa (h. 125 sm.) í stellingu; er á henni
stórsegl á rá, sniðið ferskeytt, h. 55 sm., br. neðst 121
sm., efst 97 sm., efri horn eins bæði og sömuleiðis hin
neðri. Upp af er fokka á annari rá, lík seglinu að
lögun, en minni, h. 29 sm., br. neðst 92 sm., efst 62
sm. — Dragreipi eru þrjú: neðrahjólsdragreipi, stór-
segls- og fokku-dragreipi. Vindband er á seglinu. Stagir
tvennir á siglu, neðri og hærri og framstagur að auk.
Árar 10 fylgja, 1. 78 sm. skeyttar allar með látúnsþynn-
um, en venjulega voru þó slíkar árar skeyttar með
eik. Ennfremur fylgir beytiás, stjaki, grindarstjóri með
grjóti innan í, austurtrog og 4 eikarhlunnar. Eftirmynd
þessi er gerð af Bjarna Þorkelssyni (prests Eyólfsson-
ar), skipasmið.
9