Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Blaðsíða 59
Fundin á Hvaleyri bein þriggja manna.
Á Hvaleyri, sunnanvið Hafnarfjörð, brýtur jafnan af túninu að
norðanverðu, og eru þar nú orðnir háir bakkar við fjörðinn, neðst
berg, allhátt, á því malarlag þykt og efst þykt moldarlag. Fyrir 30
árum, svo jeg veit til, varð vart mannabeina á einum stað þarna í
bakkanum, ofarlega í moldarlaginu, og fundust þar nokkrir gripir.
Bein sáust stundum í fjörunni undir berginu. — Fyrir þremur árum
tók Magnús bóndi Benjamínsson, sem þar á heima í Hjörtskoti, höfuð-
kúpu af manni og nokkra hálsliði þar úr bakkanum og gróf í kistli í
mónum þar hjá, fjær sjó. Haustið 1924 varð hann var fleiri beina
þar yzt í bakkanum og sumra í fjörunni. Gróf hann þá dálítið til
og tók enn úr bakkanum 2 höfuðkúpur og mörg bein önnur, úr tveim
mönnum. Var mjer nú gert við vart og fór jeg að skoða beinin.
Höfuðkúpurnar voru heillegar og mátti sjá af tönnunum, að önnur
væri af öldruðum manni, en hin af miðaldra. Eftir skýrslu Magnúsar
um upptöku beinanna og því, sem sjá mátti af þeim, vantaði enn mikið
af beinum yngra mannsins; hafði hann legið litlu innar i bakkanum,
en raunar virtust allar beinagrindurnar hafa legið þjett saman. Að
sögn Magnúsar lágu bein gamla mannsins þannig, að sjá mátti að
hann hafði ekki orðið lagður til, heldur jarðsettur kreptur. Svo var
nú áliðið, að jörð var frosin og ákvað jeg að fresta frekari rannsókn
til næsta sumars. Fór jeg svo 13. ág. 1925 og athugaði fundarstaðinn.
Við rannsóknina komu í ljós fætur yngra mannsins, báðir heillegir, og
hægri handleggur, sem hafði verið sveigður inn yfir miðju. Efri hluta
beinagrindarinnar hafði Magnús tekið upp að öðru leyti. Lærleggir
voru 50 cm. að lengd. Fæturnir voru alveg beinir; hafði maðurinn
verið lagður til og rjett grafinn; vissu fæturnir lítið eitt (15°) sunnar
en í háaustur. Hjá beinum hans varð ekki vart fleiri beina, en ekki
var grafið vítt út frá þeim. Beinin voru um 50 cm. (19 þuml.) frá
núverandi grassverði og hafa menn þessir ekki verið grafnir dýpra.
Ekki varð vart við leifar af líkkistum, en hornhnapp af fötum hafði
Magnús fundið. Sennilega hafa líkin verið grafin í fötunum. Magnús
tók nú upp aftur höfuðkúpu þá, er hann hafði grafið í móann fyrir
2 árum. Hún var af ungum manni; sýndu það tennurnar í kjálkunum,
8