21 þó ekki sé nú kunnugt. Smágiljaskorningar eru á milli torfanna. Austur-af þeim eða inn-af er Fremri-Palltorfa (10), og er Grentorfu- gil (11) á milli. Torfan sú er bæði há og breið, og brekka eða pallur á henni miðri, og annar nokkuð ofar; mun hún draga nafn af þeim. Fremra-Palltorfugil (12) er milli hennar og Nauthylstorfu (13), sem dregur nafn af Nauthyl í Fiská, og er allmikill pyttur í ánni niður-af torfunni. Upp-af henni er Mjóa-torfa (14) og Öngultorfa (15) enn ofar, upp-af Mjóu-torfu. Hún er að blása, bakkabrot. Innni-Palltorfa (16) myndast i odda milli Nauthylsgils (17) og Innra-Palllorfugils (18). Falla þau saman neðanvert við torfuna, og heitir þá Bólgil (19), af tveim smáskútum, sem eru í því. Næsta torfa inn-af henni heitir Miðuaðstorfa (20). Hún er mjög breið að neðan. Gilið fyrir innan hana er kennt við hana og kallað Nedra-vaðsgil (21). Niður-af austasta horninu og austan Miðvaðstorfu eru Fremri- Smátorfur (22) og Fremri-Þrihellratorfan (23), fyrir vestan Þrihellra- gilið (24). Það skilur lönd Reynifells og Þorleifsstaða. Gilið er þrí- klofið ofan-til og skúti í botni hvers smágils, nefndir einu nafni Þrí- hellrar (25). Þeir eru í hækkandi röð, skammt hver frá öðrum. Við Fiská, innan-við gilið, liggur Innri-Þríhellratorfan (26) og austur-af henni Innri-Smátorfur (27), en smágil á milli. Torfa (28). Svo er nefnd smáflöt uppi á fjallinu, fyrir vestan Harða-vallargil (29)- í því eru hamrar miklir og ófærur, nema þá í stöku stað. Efst í gilinu eru nefndir Harða-vallargils-klofningar (30). Með Fiská er sléttlendur og þurr grasvöllur, sem heitir Harði- völlur (31). Þar sér til gamalla veitustokka. Á Harða-velli er mótak, og er mórinn 9 stungulög, en mjög djúpt er niður að honum. Tanginn, sem mórinn er tekinn í, nefnist Mótangi (32), og Mótangaþýfi (33) vestan-við hann. Allir Krókbændur taka þar mó árlega. Upp-af Harða-velli, nyrzt í fjallshorninu, eru hamrar miklir; draga þeir nafn af vellinum og heita Harða-vallar-hamrar (34). Austasti hluti þeirra nefnist Tvístður (35); myndast pallur í hamarinn, svo þar verða efri og neðri hamrar. Öxlin (36) kallast hæð hátt í fjallinu að austan. Upp- af henni er slakki í horninu, er nefnist Mosadalur (37). Dalnum hallar mót landnorðri. Hafa sumir getið þess til, að þarna myndi Flosi hafa leynzt eftir Njáls-brennu, en mjög er það ólikt á allan hátt. Hestum myndi illkleift að komast þangað, og dalurinn hvergi nægur að hylja allt fylgdarlið Flosa. Inn-af Harða-velli er hóll nokkur, nefndur Flaghóll (38), og norðan- undir honum Flaghólsflöt (39), smásteinflöt. Fyrir vestan hólinn er Flag- hólsgil (40); það liggur ofan-úr fjallinu og niður að Fiská, gróið að