32 Það kom i Ijös, er jarðvegurinn var skafinn sléttur þar sem dysin var og umhverfis hana, að hér hafði verið gerð gröf fyrir lík mannsins. Hún hafði hér neðst verið 168 cm. að lengd og 70 að br. bogamynduð í enda, einkum hinn syðri, þar sem fætur munu hafa verið. Er hin hreyfða mold var skafin upp úr gröfinni, varð hún glögg að innan í botninn, og varð þar undir harður, malarkenndur og leir- borinn jarðvegur. Var hann um Vi m- frá yfirborði dysjarinnar nú. Botninn vor íholur. Hlutir fundust hér engir fleiri; hafa sennilega allir, þeir er nýtir virtust, verið tíndir burt af þeim, er rótað höfðu dysinni fyrrum. Tennur mannsins eru ekki mikið slitnar; bera ekki vott um, að hann hafi verið öllu eldri en hálffimmtugur, er hann dó, eða var veginn hér, svo sem hann helzt virðist hafa verið. Hesturinn hafði verið dysjaður um l1/^ m. suðaustur frá dys mannsins. Hestsbeinin voru miklu minna fúin en bein mannsins, og þeim virtist ekki hafa verið rótað. Hesturinn hefir legið á hliðinni og snúið höfði í norður, en fótum til vesturs, undan brekkunni og að manninum. Hlutir fundust engir með hestsbeinunum. Stærð hests- sins hefir verið venjuleg. Af beinum hans voru einungis 2 af neðstu leggjunum teknir með til Þjóðmenningarsafnsins, annar úr öðrum framfæti (metacarpus) og er hann 21,5 cm. að lengd, en hinn úr öðrum afturfæti (metatarsus) og er hann 25,8 cm. að lengd. Sýna þeir, að hesturinn hefir haft sömu stærð og flestir hestar hér á landi nú. Enn fremur voru nokkrar af tönnum hestsins, 4 jaxlar og 7 fram- tennur, teknar með. Bera þær vott um, að hesturinn hafi verið orðinn allgamall, er hann var felldur og dysjaður. Dysjar þessar voru nú öllum ókunnar áður en þær fundust að þessu sinni, og engar sagnir munu vera til um það, hver muni hafa verið hér dysjaður. En þess má geta, að daginn áður en annar finn- andinn, Vilhjálmur Sigurðsson, fann þessar fornleifar, bar fyrir hann draumsýn, hina sömu tvívegis, þar sem hann var staddur, í dalverpi sem gengur austur og fram frá botni Svartárdals, skammt frá fundar- staðnum. Virtist honum draumsýn þessi standa í sambandi við fund sinn og sýna fall (eða morð) fornmanns þess, er hann fann hér dys- jaðan.1) Gengu sagnir um þessa atburði um héraðið, er rannsóknin var framkvæmd. 3. Dys í Álöfarey í Hornafirði. í Febrúarmánuði 1934 fundust mannsbein við vegargerð í Álöfar- ey, sem er skammt fyrir austan verzlunarstaðinn Höfn í Hornafirði; 1) Sjá Morgunblaðið, 20. árg.. 241. tbl., bls. 3.