36 skrifað mér um fund hrossbeina hér rétt skammt frá mannsbeinunum 10. Júní og sagt mér enn greinilegar frá dysjunum skömmu síðar í Reykjavík. 13. n. m. fór ég frá Akureyri að Enni og athugaði fundar- staðinn sama dag. Mannsbeinin komu í Ijós í gróf í litlum hól fyrir neðan túnið; hafði þar verið fyrir nokkrum árum (1922) tekin möl í veginn, sem er þar rétt vestan-við. Af mannsbeinunum virðist þó ekki annað hafa sézt en höfuðkúpan, nyrzt í grófinni. Við athugun sást nú brátt, að gröf hafði hér fyrrum verið gerð ofan í hólinn, sem nú var strýtumyndaður efst; hún hafði verið grafin lítið eitt (um 15 cm.) ofan-í móleirinn á 1 m. löngu svæði nyrzt í enda malar- grófarinnar. Óvíst er, hve löng eða breið gröfin hefir verið suður á við, því að þar var nú malargrófin og allt fært á burt í veginn. Var nú tekinn af hóllinn, eða grafið skarð í hann þar upp af, sem gröfin hafði verið gerð, og sást, er kom niður að móleirnum, að ekki var eptir af henni, nema lítið eitt, dálítill geiri nyrzt og aust- ast. Var höfuðkúpan þar austast nú, og mun hafa fundizt þar, en annar kjálkinn, hinn vinstri, var vestast, og annað mjaðmarbeinið, og er rannsakað var austurhornið, norðan-við höfuðkúpuna, fundust þar 3 bein: hitt mjaðmarbeinið, brot af lærlegg og sköflungur. Var sýnilegt, að þessi bein höfðu legið þannig mjög lengi óhreyfð, og mun dys þessi hafa verið grafin upp endur fyrir löngu, og beinin látin óreglulega niður í þá gröf aptur. Þessi bein, sem nú fundust, eru öll óheilleg, mjög eydd af fúa. Mjaðmarbeinin eru ekki svo heilleg, að séð verði með vissu, hvort þau eru heldur úr karli eða konu. En öll eru beinin svo grönn og veikbyggð, að meiri líkur eru til, að þau séu úr konu, og tennurnar benda einnig á það. Þær virðast vera úr konu, sem dáið hafi um fimmtugt. Sköflungurinn, sem fannst, heldur nokkurn veginn fullri lengd sinni og er 37,3; virðist konan eptir því hafa verið um 166 cm. há. Vestar í malargrófinni sást í hrossbein í bakka hennar, og er til var grafið, fundust þar fleiri. Var nú tekið ofanaf, og fundust mörg brot af hross-kjálkum og -jöxlum, -rifjum og fleiri beinum, og 1 lærleggur úr hrossi. Var þetta beinarusl allt í óreglu, og hafði hér verið rótað í einnig fyrir löngu, og síðan hulið aptur. Virtist hafa verið l3/4 m. milli dysjanna. Naglar 23 úr járni og fleiri óreglulegir járnmolar voru meðal hrossbeinanna, líklega úr söðli. Öll voru beinin tekin með til Þjóðmenningarsafnsins.