37 5. Dys hjá Gröf á Vatnsnesi. Presturinn á Melstað, séra Jóhann Briem, og maður nokkur frá Hvammstanga höfðu skýrt mér frá því, að bein úr manni hefðu fundizt fyrir skömmu nálægt bænum Gröf á Vatnsnesi. í suðurleið frá Akureyri kom ég við á Hvammstanga 18. júlí 1935 og ók þaðan að Gröf samdægurs til að athuga fundarstaðinn. Nokkur mannsbein, höfuðkúpa o. fl., komu þegar í ljós; höfðu verið hulin lauslega aptur, er þau fundust. Var þetta í litlum og lágum melhól vestur-undan bænum, rétt við aðalveginn út á Vatns- nesið; mun hafa verið tekin möl úr hólnum til þess að láta í veginn, er hann var gerður, og kann að vera, að þá hafi einhver bein farið í hann með; eru nú nokkur ár síðan. Jarðvegur var nær enginn í hólnum nú, þar sem beinin voru, en hreyfð möl og mold, dálítið gróin efst, var þó yfir þeim, að eins um */* m-> °g myndaði dálítið barð, yfir hallandi malarskriðu. Er moldin var hreinsuð ofan- af, komu nokkur fleiri beinabrot og leggir í Ijós, og kjálkabrot suð- austar, en höfuðkúpan hafði komið í ljós, og fundizt i sumar áður, norðvestast, um 1 m. frá. Sýndi þetta ljósast, ásamt öðru fleira, að dys þessi hafði verið grafin upp áður, sennilega fyrir löngu, og beinin látin niður óreglulega, eins og í dysjunum hjá Staðartungu og Enni. Hin upprunalega gröf hafði ekki verið grafin dýpra en að hinu móleirsblandaða eða hreina malarlagi, um 3,5 cm. frá núverandi yfir- borði, og ekki hafði gröfin verið viðari en svo, að líkið virtist hafa verið sett niður með krepptum fótum. Fótleggirnir, sköflungarnir, fund- ust báðir, voru saman og sneru eins, í suðaustur norðvestur. Nokkrir steinar voru yfir beinunum og sunnan-við þau, eins og meðal- hleðslusteinar að stærð; hafa þeir sennilega verið umhverfis í dysinni upphaflega. Tennurnar bera vott um allháan aldur, sennilega sextugsaldur, hins dysjaða manns, og virðist hann hafa verið karl, en ekki kona; verður það helzt ráðið af höfuðkúpunni. Hvorugur sköflunganna er heill, en þó má fara nærri nm lengd þeirra; þeir virðast hafa verið 37 cm. langir, og maðurinn eptir því um 167 cm. hár. Um 1011 járnnaglar og fleiri járnmolar fundust með þessum beinum; sumir eru með tréleifum við og sumir eru með ró; þeir virðast kunna vera úr skildi.