60 leyfði ekki að grafa hér svo lengi, að öll gölfskánin neðsta kæmi í ljós. Þessi rannsókn virðist eindregið benda til, að skáli Grettis hafi staðið hér undir hamrinum, enda er þessi staður að öllu leyti líkleg- astur til þess, að Grettir hafi valið hann öðrum fremur í eynni til skála- stæðis. Var mikið skjól að hamrinum fyrir skálann og íbúa hans, og hér nærri var að sögn (sbr. Kálund) fyrrum farið upp á eyna. Ásig- komulag gólfskánarinnar neðstu benti einnig að öllu leyti á, að hér hefði skáli Grettis staðið, svo sem hin gömlu munnmæli bentu á, þau er Sigurður á Hólabaki og Sveinn faðir hans höfðu jafnan heyrt. Að lokinni rannsókninni gengum við norður á eyna og fórum síðan niður af henni, stigum í bátinn og héldum aptur til Sauðár- króks; komum þangað á miðnætti. Matthías Þórðarson.