73 inga. Fyrir verk sitt skyldi hann fá frjálsar ferðir fyrir sig, bróður sinn og fjölskyldur beggja, og 940 ríkisdali að verkinu loknu. Af þessu átti hann að launa bróður sinn. Ennfremur átti ríkið að leggja honum til múrstein og kalk, alla flutninga á byggingarstaðinn, 6 hjól- börur, 4 handbörur, 1 vagn, 1 sleða og aktygi á 4 hesta. Flutning á efni og fólki frá Kaupmannahöfn til Vestmannaeyja tók stjórn hinnar Alm. Isl., Finmarkske og Grönlandske Handel að sér. Skrifaði rentukammer þeim Thodal stiftamtmanni og Finni Jónssyni biskupi 14. maí 1774, og skýrði þeim frá því, að efni til bygg- ingar Landakirkju og smiðir sé sent til Vestmannaeyja, og beri að byggja kirkjuna samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti. Lagði skipið í haf frá Kaupmannahöfn í maímánuði 1774, og kom til Vestmannaeyja í byrjun júlímánaðar. Var byrjað á uppskipun efnisins 7. júlí, en lokið við hana 22. ágúst. Var nú strax tekið til óspiltra málanna við undirbúning verk- sins. Er ennþá hægt að sjá, hvernig miðað hefur verkinu, vegna þess að Kristófer Berger gaf rentukammeri árlega skýrslu um það, sem unnið hafði verið. Skýrslur þessar eru nú geymdar í Þjóðskjalasafni, ásamt Landakirkju-skjölum, sem Danir hafa nýlega skilað. Er frásögnin um þessa kirkjubyggingu byggð á þeim skjölum. Árið 1774 var í fyrstu lagður vegur á byggingarstaðinn, og mun það vera fyrsti vísirinn að Kirkjuvegi í Eyjum. Var vegur þessi lagður vegna aðflutninga á efni, sem virðist hafa verið flutt á vagni á byggingarstaðinn. Þetta ár unnu flest 17 menn við bygginguna, en fæst tveir. Árið 1775 var stöðugt unnið, og voru við verkið 7 menn flest, en fæst tveir. Árið 1776 var unnið frá 1. janúar til 1. desember, og unnu þá flest 8 menn, en fæst tveir. Fyrir árið 1777 vantar skýrslu frá Berger, en sjá má af bréfi, dags. 8. júlí 1777, frá Hans Klog kaupmanni til Thodals stiftamtmanns, að þá hefir Berger átt eftir 3 daga vinnu af steinsmíðinni, og 7. ágúst skrifar Thodal rentukammeri, og tilkynnir, að allri steinsmíði við kirkjubygginguna sé nú lokið, og Kristófer Berger hafi í hyggju að sigla aftur í haust. í þessu sama bréfi skýrir Thodal svo frá, að ekkert sé enn byrjað á trésmiði við bygginguna, og gerir um leið þá fyrirspurn fyrir Hans Klog kaupmann, sem sá að nokkru um bygginguna, hvort allir innviðir megi ekki vera úr nýju timbri, þar eð ekkert úr gömlu kirkjunni sé nothæft til þeirra hluta. Hafði Klog í bréfi sínu 8. júlí 1777 talið heppilegra að smíða alt úr nýjum viði, og getið þess, að ekki mætti heldur rýja svo gömlu kirkjuna, að ekki verði hægt að halda þar guðsþjónustur meðan nýja kirkjan sé ófullgjör.