81 heldur sem komið er vestan frá Langeyjum eða Langeyjavogum; er þá farið inn svo-nefndan Skálastraum, sem er á milli Skáleyjar og Purkeyjar; eða komið er frá Stykkishólmi og farið fyrir sunnan Hrappsey og Purkey (áður Svíney). Nú er sagt, að Auður hafi komið frá Bjarnarhöfn; eru þá meiri líkur til, að hún hafi farið fyrir sunnan Hrappsey, inn straumana fyrir sunnan Purkey, annaðhvort Knararbrjót eða Sölfastraum, og inn í Litla-Dagverðarnes og matast þar. En hvar sem Auður og lið hennar hefir etið dagverðinn, er víst, að það hefir hvergi verið þar nálægt, sem Dagverðarness-bærinn stendur, heldur einhvers staðar í þessu nesi, sem Dagverðarnes og Arnarbæli standa á. Er mjög sennilegt, að nesið hafi þá allt verið kallað Dagverðarnes. Arnarbælisbærinn (1) stendur sunnan undir hárri klettaborg, sem heitir Bæjarborgin (2) og öll er gróðurlaus. Túnið (3) er með-fram borginni að sunnan, langt en mjótt; liggur það frá norðaustri til suðvesturs. Bæjarborgin takmarkar það að norðan, en mýri að nokkru leyti að sunnan, og vesturhorn Arnarbælisvogsins ytri enda þess. Fyrir neðan sunnan mýrina er gömul rúst, sem heitir Arnar- bælis-kot (4). Móarnir í kringum rústina eru gott túnefni, enda mun þar hafa verið tún til forna. Fyrir sunnan móa þessa eru Arnarbælis- vogsbakkarnir (5). Vestast á þeim er Skipatanginn (6). Norðvestan-við Skipatangann er báta-uppsátrið í Arnarbæli, og aðallendingin, þá er hátt er sjávað. Arnarbælisvogurinn (7) þornar allur, þá er sjór er hálffallinn út, fram á móts við Litla-Dagverðarnes (8); mun það vera um y4 úr mílu að vegarlengd. Arnarbælisbærinn stendur hér um bil á miðju túninu. Hann var byggður 1894; er torfbær, all-hressilegur. Til byggingarinnar var vel vandað að öllu efni og smíði. Fyrir austan bæinn er heyhlaða, fjós og hesthús, sem allt er byggt úr torfi og grjóti, og byggt um líkt Jeyti og bærinn, og hefir lítið verið endurbætt síðan. Fyrir ofan bæinn er stór kálgarður (9), sem Bogi Smith lét byggja. Hann bjó þar á árunum frá 1874 1886, að hann drukknaði 4. maí, ásamt tveimur sonum sínum, í svo nefndri Röst, sem er breitt sund á milli Kjóeyja að sunnan, er tilheyra Skógarstrandarhreppi i Snæfellsnes- sýslu, og Arnarbæliseyja að norðan; er talið víst, að reka-ís hafi grandað bátnum, því að lagnaðarís var mikill á Hvammsfirði þann vetur og fram á vor, eins og öll þau ár, sem öll voru harðindaár. Bogi sál. var örendur, þá er hann náðist, enda þó að hann væri vel syndur. Hann hafði bundið sig með bátsfestinni við bátinn, en synir hans náðust ekki. Bogi sál. var jarðaður á Staðarfelli, og er minnisvarði yfir honum þar í kirkjugarðinum. Vegur liggur í gegnum endilangt túnið í Arnarbæli, því að veg 6