82 er ekki hægt að byggja fyrir ofan það né neðan. Ytri endi túnsins liggur að vogsbotninum, og því er ekki hægt að byggja veg þeim megin við það, en að ofan (norðanverðu) er Bæjarborgin, sem mjög dýrt væri að leggja veg yfir. Fyrir austan kálgarðinn er hóll, sem Lambhússhóll heitir (10); liggur hann frá kálgarðinum inn undir Lambhúsin, sem eru innarlega á túninu, rétt við Bæjarborgina. Sá hluti túnsins, sem er fyrir austan bæinn, en fyrir ofan reiðgötuna, heitir Lambhússvellir (11) fremri og innri. Vellir þessir eru báðir mjög grýttir og þýfðir. Þar er ekkert greiðfært, nema ein flöt og Lambhússhóllinn. Er mjög erfitt að slétta þessa velli, vegna stórgrýtis, Fyrir neðan (sunnan) götuna er Brunnhússvöllur (12). Nær hann frá brunnhúsinu, sem er neðst í tún- jaðrinum, og yzt í vellinum, inn að túngarði. Völlur þessi er langur, en mjór. Mestur hluti hans er þýfður og grýttur. Fyrir vestan Brunn- hússvöllinn er Smiðjuhólsflötin (13), og Smiðjuhóllinn (14) þar fyrir vestan; er hann allstór um sig og greiðfær. Fyr á tímum stóð smiðja á þessum hól og sést enn fyrir tóft hennar. Hóllinn er berghóll, sem um langan tíma hefir verið þakinn ösku og öðru úrgangsrusli; er þess vegna orðið nú talsvert djúpt jarðlag á honum, ofan-á berginu. Fyrir ofan Smiðjuhólinn er Bæjarhóllinn (15), sem er lágur og lítill um sig. Á milli hans og Smiðjuhólsins er laut. Fyrir vestan þessa hóla tekur við völlur, sem Þúfnaoddi heitir (16); nær hann alla leið út að tún- garði. Þúfnaodda marka hólarnir að austan, reiðgatan að norðan, túngarðurinn að vestan og Arnarbælisvogsbotninn að sunnan, og myndast skarpur oddi úr honum fram í voginn. Af þessum Odda og því, hve ill-þýfður þessi völlur var, mun hann hafa fengið þetta nafn. Þúfnaoddi mun vera um 67 dagsláttur að stærð. Þennan völl var erfitt að heyja, meðan hann var allur þýfður; nú er hann allur sléttur. Elztu slétturnar eru um 40 ára og farnar að þýfast vegna vatns. Fyrir ofan (norðan) götuna með Bæjarborginni er völlur, sem Lengja heitir (17). Nær þessi völlur frá vesturenda kálgarðsins og út að túngarði. Lengja er öll þýfð og grýtt; aðeins ein flöt í henni fyrir utan bæinn, og var erfitt að gera hana, vegna grjóts. í Lengju er rúst, sem Bænhússtóft er kölluð; er talið víst, að þar hafi bæna- hús það staðið (18), sem um langan tíma var í Arnarbæli. Bænahús- inu fylgdi eitt ásauðarkúgildi; eftir það greiddi ábúandi jarðarinnar sóknarprestinum 20 pd. af smjöri. Sagnir eru um það, að þetta kúgildi hafi fallið, og að þá hafi staðið styr á milli jarðareiganda og sóknar- prests um greiðslu á leigu eftir kúgildið. Eftir talsvert þjark hafi þó samizt svo á milli þeirra, að presti skyldi greiða árlega eina spesíu;