85 varp. Sauðfé fer örsjaldan fram í flögurnar, þótt í þær fjari, því að talsverð bleyta er á milli eyjarinnar og flaganna. Fyrir ofan Brúarey en vestan Þorkelsvogs-botninn eru Brúareyjar- bakkarnir (51), Meiri hluti þeirra er skógivaxinn, en smá-mýrarsund á milli. Eru þeir suðvestur-af Skollaborg, sem áður er sagt frá. Fyrir vestan SkoIIaborg er Skollaborgarflói (52), sem er víðáttumikill, nær frá suðurenda Húsaásanna að austan og að Skollaborg að sunnan, en að Bjarnastaðaborg (53) að vestan; á þessum flóa er mjög góð vetrar- beit fyrir sauðfé. Fyrir utan Brúareyjarbakkana er Iítið Lón (54), sem fellur upp i með stórum flóðum. Er rif fyrir framan Lónið, sem gengið er eftir, þá er lágsjávað er. Rétt fyrir vestan Lónið er Bjarnastaðaborg, há borg, en ekki stór um sig. Talsverður birkiskógur er í kringum borgina og nokkuð upp á henni. Fyrir vestan Bjarna- staðaborg eru holt og ásar, sem einu nafni kallast Bjarnastaða-holt og -ásar (55). Flest eru þessi holt vaxin smáum birkiskógi. Flóasundin á milli þeirra eru litil; þau eru vaxin fjalldrapa og brokstör á milli. Vestur- og suður-af Bjarnastaðaásunum eru Borgartangarnir (56). Tanga þessa myndar vogur frá Brúarey, en að vestan Dagverðarnes- lónið (57). Frá Borgartöngunum og frá Skáley, (58), sem er í Dag- verðarnesslandi, eru grjótrif, sem gengið er eftir, þá er farið er fram i Skáley, þegar sjór er rúmlega hálffallinn út fyrir innan Strauma. Þetta grjótrif er kallað Austurvaðlar (59). Hólmi er i vöðlunum, sem heitir Vaðlahólmi (60) og tilheyrir Arnarbæli. Skarð er í þetta grjótrif, sem sjór rennur ávalt um úr Skáleyjarlóninu. Suður af Borgartöngunum eru 2 eyjar með háum klettum, og liggja grjótrif úr Borgartöngunum fram í þær. Sú, sem er nær töngunum, heitir Litla-Hástiga (61), en hin Stóra-Hástiga (62). Báðar þessar eyjar eru mjög gróðurlitlar, með háum klettum, og til lítils gagns. Nokkuð fyrir vestan Borgartangana eru nú landamerki á milli Arnarbælis og Dagverðarness, þar sem skógurinn endar, en flóarnir taka við. Þessi landamerki munu hafa verið í gildi síðan 1493. Líkur eru til, að fyrrum haíi þessi landamerki verið talsvert utar, úr Mark- nesi í Álftatjörn nú Lómatjörn , og af því hafi Marknesið feng- ið nafnið; bendir ýmislegt til, að svo hafi verið. Út-af því var landa- merkjamálið á milli Arnarbælis og Dagverðarness, sem dæmt var á Staðarfelli árið 1493. Landamerki þessi eru nú úr Skáleyjar-lóninu, nokkuð fyrir vestan Borgartangana, austur flóann fyrir vestan skóg- arjarðarinn, á milli Vörðuáss, sem er í Dagverðarnesslandi, og Steins- holts (63), sem er í Arnarbælislandi, rétt fyrir utan Náttmálaásinn (36), sem er hátt holt með vörðu á efri endanum. Náttmálaásinn er allur skógivaxinn og er skammt fyrir vestan Húsaásana (34). Fyrir austan