97 þá rennur kvísl, er heitir Bugakvísl (106). Fram-af Austurbugum er hálendi, er heitir einu nafni Skeiðarmanna-Fitjarásar (107). Fram-af þeim er Fossölduver (108). Fram-af Fossöldunni er há alda, heitir hún Fossalda (109). Hún er vesturbrún Fossárdals (110). Innst í Fossárdal er Hrunið (111). Hefur þar dottið stórt stykki úr austurbrún Fossöldu, og hafa af því myndazt stórkostlegar skriður, er heita þessu nafni. í Fossárdal sjást rústir af býlinu Fossárdalur (112). Þar skammt frá eru rústir, sem heita Frönsku-húsin (113). Voru þessi hús byggð fyrir nokkrum árum að tilhlutun Einars skálds Benediktssonar. Húsin átti franskt námufélag. Fram-af Fossöldu eru Rauðu-kambar (114). Vestan- undir Fossöldu eru Bergólfsstaðir (115). Varþarbær til forna. Vestan- við Bergólfsstaði rennur Bergólfsstaðaá (116). Fyrir vestan hana er Lambhöfði (117). Þar var til forna stórbýlið Ás (118). Þar vestur frá er hálendi mikið, er heitir Heljarkinn (119). Uppi á henni er Kinnarver (120). Inn-af því er Hellukrókur (121). Framan-við Kinnina rennur Grjótá (122); í henni er hár foss, er heitir Grjótárfoss (123). Framan Grjótár er hár fjallgarður; heitir hann Geldingadalsfjöll (124). Austan-í þeim er Hafragljúfur (125). Innst á Geldingadalsfjöllunum er ás, sem heitir Kista (126). Norðvestur frá Kistu er Kistuver (127). Vestan-undir þessum fjöllum eru upptök Þverár (128). Upptök hennar heita Þver- árdrög (129). Gljúfur hefur Þverá gert í hálendið; heitir það Hannesar- gljúfur (130). Fram-af Þverárdrögum er Þverárdalur (131); takmark- ast hann að vestan af stórum fjallgarði, er heitir Hestfjöll (132). Austurbrún þessa fjallgarðs heitir Hestfjallabrún (133), en hæsti tind- urinn heitir Hestfjallahnúkur (134). Af honum er mikið víðsýni í allar áttir. Norðan-undir fjöllunum er Hestfjallaver (135); þar hefur upptök sfn á, sem heitir Tunguá (136). Vestan-undir fjöllunum eru Svinaflóð (137), en framan-undir þeim er Vinduver ((138). Suður-úr ganga tveir ásaranar; heita þeir Keppur (139) og Njáldra (140). Austan-við Kepp rennur á, sem heitir Grjótá (141). Framan-við þetta hálendi er Seljadalur (142). Austur frá honum er annar dalur, sem heitir Blakkdalur (143); er helmingur hans byggðarland, en hinn helmingur afréttarland. Ber dalurinn nafn sitt af klettahrygg, sem heitir Blakkur (144). Skammt innar er foss í Þverá, heitir hann Sneplafoss (145). Rauðukamba er áður getið (nr. 114). Fram-af þeim er hæð, sem heitir Reykholt (146). Austan í því eru óljósar bæjarrústir. Vestan-undir Reykholti eru klappir; heita þær Flórar (147). í útsuður af Reykholti er klettabelti, sem heitir Vegghamrar (148). Norðan-við þá eru grasteygingar, er heita Guðmundarhagi (149). Austur-við Fossá, móts við Reykholt, er grasfit; heitir hún Fjallmanna- fit (150). Suður á sléttlendinu er holt, sem heitir Þórðarholt (151).