Örnefni á afrétti Hrunamannahrepps. Það virðist vera að vakna talsverður áhugi nú á tímum fyrir því að skrifa upp örnefni, bæði í byggðum og afréttum hér um slóðir, svo að hin gömlu örnefni glatist ekki. í sumar, er leið, var ég beðinn að skrifa upp örnefni á afrétti Hrunamannahrepps, og koma þau hér fyrir almennings sjónir. Þegar komið er inn úr austasta hliði á girðingu þeirri, sem að- skilur afrétt og byggðalönd í Hrunamannahreppi, þá verður bráðum fyrir manni Heiðará (1). Hún kemur upp í Heiðarárdrögum (2). Þau eru norðan-undir Laxárkletti og austan-við Stóra-vers-öldu (3). Það- an rennur Heiðará austur í Leirá (4), sem þá kemur beint innan-úr Frægðarveri (5). Innan-við það er Frægðarversalda (6). Upptök Leirár eru í vatni eða leirum norðvestan-undir Blákolli (7). Skammt neðar en Heiðará kemur í Leirá, er Fjallmannavað (8). Þar er Leirártunga (9) á milli Leirár og Laxár (Stóru-) (10) og Leirártungusporður (11) fremst á oddanum. Efst á tungunni ofan-við Laxá er Fjallmannaklett- ur (12), og austan-undir honum Fjallmannagil (13), og þar skammt austar er Brennivínsgil (14). Er sagt að fjallmenn hafi einhvern tíma blandað þar á ferðapelann til að drýja mjöðinn. Þá kemur Stóra- Laxá úr suðaustri, frá því er Særingsdalskvíslin (15) kemur í hana. Kvísl sú kemur innan-frá Blákolli, austan-undir Geldingafelli (16). Innsti hnúkurinn á því heitir Frægðarvershnúkur (17). Norðan-við hann kemur Leirá vestur-af. Sunnan-við hnúk þennan er Gljúfursgil (18) í slakka á fellinu. Það og fleiri gil renna vestur-af fellinu í Leirá. Suðvestan-í Fremstahnúk (19) á Geldingafelli myndast nokkur smá- gil,"sem renna um mosaflóa og mýrarver niður-í Stóru-Laxá. Austan-við Særingsdalskvíslina, sem fyr er nefnd, þar sem hún kemur í Laxá, er Geldindatangi (20). Þar er fyrsti tjaldstaður fjall- manna í suðurleit. Sumir nefna líka svo tanga vestan-við kvíslina, allt að Fjallmannagili. Á móts við austurhornið á Geldingatanga kemur Svartá í Stóru-Laxá austan-af afrétti Flóamanna. Og úr því kemur Laxá beint innan-frá Digru-öldu (21). Austan megin Særingsdalskvísl- ar renna í Laxá nokkur gil, sem ekki eru nafngreind, en næst Digru-