103 að suðaustan. Hann er ávalur að sunnan, en þverhníptur að norðan og heitir Miðhnúkur (93). Kisa (94) kemur upp undan honum, og rennur í gljúfri austur af fjöllunum niður í Kisubotna neðri (b5). Uppi í fjöllunum norðan við fremri kvísl Kisu er Kisukollur (96), og þar niður með ánni er Kisubotnahnúkur (í?7), ofan við botnana. Lítið neðar og innar eru Efri-Kisubotnar (98); þar kemur önnur kvisl af Kisu ofan úr fjöllunum; þar sem kvislarnar koma saman, eru Neðri-Kisubotnar. Þaðan rennur Kisa fram-undir Lambafell. Þar vestan-við liana er hálendi, sem heitir Múlar (98). Kisubotnahryggur (99) er framan við Kisu innar en Múlarnir. Þar er farið upp úr botnunum, ef stefna skal á Leppistungur. Fyrir innan botnana er alda og hraunbelti vestur-úr Illa-hrauni (100); á því er sandhnúkur, nær því kringlóttur; hann heitir Þverfell (101); það er í mörkum á milli afréttanna. Vestur-af því er hallandi hraunbelti niður í Jökulkrók. (102). Þar er Ölduhryggur (103). Suðaustan við hann er smá-klettahóll, sem kallaður er Júlli (104). En vestan við Ölduhrygg fremst, með bröttu klettabelti, rennur Kerlingarspræna (105). Noroan við Jökulkrók er Blánýpa (106); það er fjall áfast við Blánýpujökul (107, eða Hofsjökul). Suður af henni er Blánýpusporður (108). Þar myndast JökulkvM (109) úr nokkrum smákvíslum. Við hana nokkru neðar er Smirilshamar (110), lítill blágrýtisklettur. Þaðan er Árskarðsfjall (111) í suðri. Er það hár fjallshnúkur, að mestu grasi- og mosa-vaxinn að neðan. Hæsti hnúkur- inn á norðausturhorni Kerlingarfjallanna (austan Hveradala) heitir Loðmundur (112). En háu hnúkarnir suðaustur af Loðmundi heita Hánýpur (113). Hverdalahnúkur (114) er vestan við Hveradali. Undir skúta austan í hnúknum er Snorrahver (115). Hann nefndi Þorvaldur Thoroddsen lika í höfuðið á öðrum fylgdarmanni sínum, Snorra Jónssyni frá Hörgsholti. í dölunum eru margir hverir. Innri Árskarðsá (116) rennur niður á milli Loðmundar og Hverdalahnúks, og þar, sem hún rennur niður í Innra-Árskarð (117), er Árskarðs- hryggur (118). Þar er Sæluhús og tjaldstaður. Árskarðsgljúfur (119) er með ánni fyrir ofan Árskarð. Suðvestur-undan Árskarðsfjalli rennur Innri-Árskarðsá í Jökulkvíslina. Úr því rennur kvíslin til vesturs-út- suðurs, og er þar nefndur Skipholtskrókur (120), þangað til Fremri- Árskarðsá (121) fellur í hana; hún kemur þar ofan-úr fjöllum, jafnvel eitthvað af henni ofan-úr Miðhnúk. Þar uppi í fjöllunum, suðvestur- af Hverdalahnúk, er annar hár hnúkur, sem heitir Árskarðshnúkur (122). Þaðan, sem Fremri-Árskarðsá fellur í Jökulkvíslina1), blasir 1) Fremri eða Innri Árskarðsá myndar foss þar sem hún fellur íjökulkvísl; sá foss var 1934 skírður Stjörnuloss (eftir hryssu).