110 neðan Bíldsfell, en það er ekki líklegt, að þeir fáu bæir, sem þar eru og eru dreifðir og strjálir, hafi nokkurntíma heitið sérstöku byggðar- nafni fyrir sig. Þetta bendir til þess, að Grafningur sé ekki byggðarnafn í sögunni, heldur nafn á einhverjum stað, sem hefir verið á leiðinni frá Bakkárholti og upp að Bíldsfelli. Bréfið frá 1448 virðist einnig taka öll tvímæli af um, að svo hafi þetta verið. Samkvæmt bréfinu er Syðri-Háls, »fyrir ofan Grafning«. Syðri-Háls, sem nú heitir Litli-Háls, er syðsti, neðsti, bærinn í byggðinni Grafningi. Grafningur sögunnar var fyrir neðan Litla-Háls og því í rauninni fyrir neðan byggðina Grafning. Hann er því einhver staður á milli Bakkárholts og Litla-Háls, og á þeirri leið getur varla verið um annan stað að ræða, sem borið hafi slíkt nafn, en sjálft skarðið, sem vegurinn liggur um. Litli-Háls er líka rétt fyrir ofan skarðið, svo að það á vel við, að segja um hann, að hann sé »fyrir ofan Grafning«, ef skarðið hefir heitið því nafni. Skarð þetta á milli fellanna er djúpt. Samkvæmt uppdrætti herforingjaráðsins er það 186 mtr. yfir sjávarmál, þar sem það er hæst, en fellin til beggja handa eru miklu hærri. Kaldbakurinn, sem gengur út úr Ingólfsfjalli og liggur að skarðinu að austan og sunnan, er 311 mtr., en Bjarnarfell, sem liggur að skarðinu að vestan og norðan, en 358 mtr. Skarðið er þröngt og hlíðar fellanna brattar, beggja megin við það. Það er því mjög niðurgrafið og sannkallaður Grafningur og hefir borið það nafn með réttu. í fyrstu virðist þannig aðeins skarðið hafa heitið Grafningur, en seinna fékk öll byggðin fyrir ofan skarðið þetta nafn. Það virðist vera augljóst, að byggðinni hefir verið gefið þetta nafn neðan að, úr Ölfusinu. Ölfusingar hafa talað um að fara »upp um Grafning« eða »upp í Grafning«, þegar þeir áttu leið upp á bæina fyrir ofan fjallið, og þeir hafa þá í fyrstu átt við leiðina, sem þeir fóru, skarðið milli fellanna, en seinna hefir nafnið á leiðinni festst við byggðina, sem leiðin lá til, við þann hluta hreppsins allan, sem farið var til í gegnum skarðið. Á 16. öld hefir þessi breyting verið komin á °g byggðin búin að fá Grafningsnafnið. Er talað um Úlfljótsvatn »í Grafningk í bréfi frá dögum Stefáns biskups (14911518) og í bréfi frá 15241). Nesjar »í Grafningi« eru nefndir 15392) og Tunga »í Grafningi« 15453) Sjálft skarðið, Ieiðin milli fellanna, hefir verið nefnt Grafnings- 1) Dipl. isl. VII. nr. 92, IX. nr. 219. 2) Dipl. isl. X. nr. 217. 3) Dipl. isl. XI. nr. 359.