113 í Stíflufimtungnum voru allir bæirnir í dalnum fyrir ofan hólana. Fjórir af þessum hreppshlutum voru kendir við baei, sem í þeim voru, Hraun, Holt, Brekku og Bakka. Einn er nefndur eftir dalnum, sem hann náði yfir, Flókadal. Stíflufimtungurinn getur annaðhvort verið nefndur svo af því, að dalurinn, sem hann náði yfir, hafi þá þegar verið nefndur Stífla, eða að hann hefir verið kendur við það, sem aðgreindi hann frá öðrum hlutum hreppsins, hólagirðinguna, Stífluna. Ef síðari tilgátan er rétt, sem mér virðist líklegra, þá er það skiljanlegt, að nafnið á fimtungnum verði nafn á dalnum og haldi áfram að vera það eptir að fimtungskiftingin var horfin. 3. Sund. Eins og kunnugt er, liggja nokkrar eyjar á Kollafirði við Faxaflóa. Verða því sund bæði milli eyjanna sjálfra og milli þeirra og lands. Að svo miklu leyti, sem sundum þessum eru gefin sérstök nöfn, eru þau kennd við eyjarnar, t. d. Engeyjarsund milli Engeyjar og Effers- eyjar, Viðeyjarsund milli Viðeyjar og lands, Þerneyjarsund milli Þern- eyjar og lands. Eftir þessum sundum voru byggðarlögin við suðaust- ur hornið á Faxaflóa nefnd um eitt skeið, a. m. k. á 15. og 16. öld, «n það byggðarnafn er nú horfið og gleymt fyrir löngu. Árið 1490 skipaði og tilsetti Diðrik höfuðsmaður Pining sinn »trvrtn þienara hinrek mæding at reka mins herra kongzens sýslo og vmbod . . . vm kios kialarnes og med svndvm«.x) Umdæmi Mædings hefir þannig náð yfir Kjósar- og Kjalarnes-hreppa, en hvað náði það frekara, hvaða hérað var það, sem kallað var »með Sundum«? Nafnið sýnist fyrst og fremst vera dregið af Viðeyjarsundum. Þannig er í dómi frá lögmannsárum Eyjólfs Einarssonar (148014L4) talað um greiðslu vígsbóta, sem fara eigi fram »aa Gvfvnese vid Vid- ejar svnd«2) og í bréfi frá 1501 er talað um »Videy med Videyar- svndvm«.3) Þetta má til sanns vegar færast um þessar jarðir báðar, en það voru ekki þær jarðir einar, sem að Viðeyjarsundum lágu, sem við þau voru kenndar. í síðastnefndu bréfi er þannig talað um jörð- ina »þormodzdal . . . er liggr j mosfelltz kirkiv sokn med Videyiar- svndum«, og meira að segja um jörðina Straum »er liggr vt j Hravn- vm j Bessastada kirkívsokn med Videyarsvndvm«. Þetta bréf var gert í Viðey og sjálfur ábótinn, Árni, var aðili að kaupunum, sem bréfið hljóðar um, svo að bréfritararnir hljóta að hafa vítað það, að 1) Dipl. isl. VI. nr. 630. 2) Dipl. isl. VI. nr. ?99. 3) Dipl. isl. VII. nr. 561.