116 heitið hefir Finnmörk, en þetta nafn er nú algerlega gleymt þar í sveitinni. Orðið mörk kemur fyrir í nokkrum öðrum byggðarnöfnum hér á landi, Þelamörk í Hörgárdal, Þórsmörk og Einhyrningsmörk í Rangár- þingi. Finnmörk gæti verið dregið af mannsnafninu Finnur og mörk = skógur. Skógur er enn nokkur á þessum slóðum. En Finnmörk gæti byggðin líka hafa verið nefnd eptir Finnmörk í Noregi, þótt þessar sveitir að visu sýnist aðallega hafa byggst vestan um haf. Hvort réttara sé, verður ekkert sagt um með vissu. Ólafur Lárusson.