Örnefni á Austur-Bleiksmýrardal. Upp af Fnjóskadal (1) liggja afdalir þrír inn í landið. Austast er Timbuwalladalur (2), þá Hjaltadalur (3), en vestast Bleiksmýiar- dalur (4), sem er lengstur og hrikalegastur. Innst í drögum Bleiks- mýrardals á Fnjóská (5) upptök sín, en er þó oftast nefnd Bleiks- mýrardalsá (6), unz hún kemur saman við Bakká (7), en það er ekki fyr en norður á móti Reykjum (8), sem er innsti bær á vesturkjálka Fnjóskadals. Tvær litlar ár koma sín úr hvorum eystri afdalanna og eru kenndar við þá. Kambfellshnjúkur (9) heitir öxlin, sem skilur þá dali, og koma árnar þar saman við eyrarodda og heita þá sam- eiginlega Bakká, en það er nokkrum spöl sunnan við Sörlastaði (10), sem er innsti bær á austurkjálka Fnjóskadals. Bakká rennur síðan all-langa leið, unz hún rennur saman við Bleiksmýrardalsána, eins og áður er sagt. í Tungunni (11), sem myndast milli Bakkár og Bleiksmýrardalsár, standa tveir bæir; Tunga (12) er vestan-undir Tungu-öxl (13), sem skilur Bleiksmýrardal frá hinum dölunum, en það er nokkuð sunnar en Reykir; Snbjarnarstaðir (14) standa austan við Tunguaxlarfjall (15) og all-Iangt suður með því, eða beint á móti Sörlastöðum. Tungan sjálf er afar-viðlendur og hrjóstrugur fjall- drapamói, og heitir nyrsti oddinn Sporður (16), eða Tungu-Sporður (17). Tilheyrir allt það flæmi jörðinni Tungu, sem einnig á land mikið inn eftir Bleiksmýrardalnum, allt að svo-nefndum Hamarslk (18). Um allt þetta afdalasvæði úir og grúir af örnefnum, sem fróð- legt væri að skrásetja. Vil ég freista að gefa hér svo nákvæmt yfirlit, sem mér er unnt, um örnefni og landslag á þeim hluta þessa svæðis, sem mér er kunnastur, en það er Austur-Bleiksmýrardalur (19). Þó að hér sé ekki nema um einn dal að ræða, er oftast í dag- Iegu tali nefndur bæði Austur-Bleiksmýrardalur og Vestur-Bleiks- mýrardalur (20), sem þýðir austur- og vesturkjálki Bleiksmýrardals. Innstu drög Bleiksmýrardals er gróðurlaust verpi, meö fremur lágum melhálsum aðliggjandi, sem þó hækkar, er neðar kemur í drögin. Þarna seytlar Bleiksmýrardalsáin upp á milli steinanna, og er þegar