126 er Krókatjörn (24). Sunnar í Geiraldslæk heitir Stóra-lón (25); vestan við það er Vonda-flá (26). Geiraldslækur kemur þar austan-að; heitir Nýpupollur (27) lón í honum stutt fyrir neðan Nýpurnar. Nýpur (28) heitir einu nafni svæðið frá Fitjá að norðan og fram að Atlalæk (29). Geiraldsgnýpa er norðust. Atlalækur kemur úr Valdavatni, sem er á Viðidalstunguheiði, og rennur ofan í Arnarvatn. Norðan-við Nýpupoll er Nýpupollshóll (30). Fyrir norðaustan hann er Bugatjörn (31); úr henni rennur Bugalækur (32) fyrir vestan Geiraldsgnýpu norður í Fitjá; þar heita Fitjárbugar (33), sem lækurinn fellur í ána. Framarlega i Austurá er Neðra-Þúfulón (34); þá Efra-Þúfulón (35) framar; næsta lón þar fyrir framan er Langa-lón (36), svo er Litla- Arnarvatn (37), sem er líka lón í Austurá; við norðausturhornið á því eru Skálamóar (38). Frá Litla-vatninu að Arnarvatni stóra (39) eru ca. 50 m., þar sem það er stytzt. Riminn á milli vatnanna heitir Grandi (40); austarlega á honum, á Stóra-Arnarvatns-bakkanum, er steinn, sem heitir Strákur (41). Nokkru austar er Skálavík (42); að austanverðu við hana er Skálatangi (43); þar er leitamannakofi. Beint norður frá honum er Hnúfabak (44); það er stór hæð, sem er mjög víðsýnt af. Fyrir norðvestan það er Tjaldhóll (45). Nokkru fyrir austan skálatanga við Arnarvatn er Djúpa-vík (46); austar er Atlavík (47); i henni er Atlavíkurhölmi (48). Fyrir sunnan Atlalæk er berg- höfði, sem heitir Grettishöfði (49). Fyrir sunnan höfðann eru Grettis- tóftir (50). Fyrir neðan þær er Grettistangi (51); gengur hann vestur í Arnarvatn. Fyrir sunnan Grettistanga er Buðará (52); hún kemur austan af Stóra-sandi. Suðausturhormð af Arnarvatni heitir Skamm- árvík (53). Á víkinni er hólmi, sem heitir Landeyja (54). Skammá (55) kemur úr Réttarvatni (56) og rennur ofan í Arnarvatn. Við hana er sæluhús. Réttarvatn er suðaustur af Arnarvatni; austur i það gengur tangi, sem heitir Réttarvatnstangi (57). Þar er fjárrétt Draga þar í sundur fé sitt á hverju hausti Miðfirðingar, Víðdælingar og Borgfirðingar. Vestur-undan Grettistanga eru hólmar í Arnarvatni; þeir heita einu nafni Eyjar (58). Hjá þeim lágu, að sögn, net Grettis, er hann synti eftir þeim. Suðvestur-hornið af Arnarvatni heitir Sesseljuvik (59). Fyrir norðan Sesseljuvik er Grunnavík (60). Þar fyrir norðan rennur Austurá úr Arnarvatni. Fyrir suðvestan Arnarvatn er Svarta-hæð (61); á henni er steinn, merktur með L. 11. Þar eru landa- merki milli Miðfirðinga og Borgfirðinga. Allt landið milli Austurár og Fitjár og frá Aðalbóls-heimalandi fram að Arnarvatni er kallað einu nafni Kjálki (62). Fyrir norðvestan Svörtu-hæð er Gunnarssona- vatn (63). Eru gömul munnmæli, að þar hafi bræður tveir veitt sil- ung með öfugum uggum, borðað hann og dáið af. Úr vatninu rennur