127 Gunnarssonalækur (64) norður í Strípalón (65); þau eru mörg og rennur Strípalónalækur (66) á milli þeirra og fellur ofan í Úlfsvatn. Þar heitir hann Gilsbakkaá. Hún er í Borgfirðingaleitum. Austasta Strípalónið heitir Grandalón (67). Mjótt eyði er á milli austustu lón- anna, sem heitir Grandi (68). Þá vestra Grandalón (69), Tangalón (70), Austara-Þórhalls-lón (71), Vestara-Þórhalls-lón (72). Við lónin er skálatóft, sem heitir Lónaborg (73). Þar lágu varðmenn heilt sumar til þess að fé Húnvetninga og Borgfirðinga gengi ekki saman, svo fjárkláðinn bærist ekki norður. Að norðanverðu við lónin eru stór- grýttar hæðír; heita þær Hraungarðar (74). Ná þær vestur í Hrút- firðingaleitir. Fyrir austan þá er Skálatjörn (75). Fyrir sunnan og austan hana er strýtumyndaður hóll, sem heitir Ketilsstapi (76). Norðan við Hraungarða er Hólmavatn (77); úr því rennur Syðri-kvísl (78). Fyrir austan Hólmavatn er hóll, sem heitir Stórhóll (79), en fyrir norðan það er Dyshóll (80). Fyrir norðan Dyshól er Ytri-kvísl (81). í henni er lítið tón, sem heitir Kvikandi (82), Þar er oft mikill silungur á haustin, og er nafnið komið af því. Á kvíslarbakkanum að norðan er Halldórshóll (83). Hornmerki að sunnan milli Aðalbólsheiðar og Núpsheiðar er Hávaðavatn (84). Renna Strípalón í það; heita svo Gilsbakkaá, þegar þau renna úr því. Úr Hávaðavatnsósi eru merkin beint norður yfir Hraungarða, um Fjölvörður (85) sjónhending í Þorvaldsvatn (86). Úr því rennur Þorvaldsá (87) í Austurá. Skammt fyrir sunnan Aðalbreið, sem er fremsti bær í Austurárdal, þar sem árnar koma sarnan, heitir Ármótsbjarg (88). Framarlega við Þorvaldsá er hár hóll, sem heitir Kast li (89). Neðar með ánni að austan er Kaplabeinsurð (90). Fyrir norðaustan Dyshól eru margir hólar saman, sem heita Þormóðshólar (91). Norðvestur af þeim er lítið vatn, sem heitir Hólmavatn ytra (92). Norður af því er Tungukollur (93). Þaðan sést norður til bæja og suður á leitamörk. Fyrir sunnan og austan Tungu- koll er lón i Austurá, sem heitir Neðsta-lón (94). Kringum það eru Neðsta-lóns-hólar (95); fyrir framan það er annað lón í Austurá, sem heitir Stokkalón (96); í kringum það heita Stokkalónshólar (97). Á móti Skriðuhvammi er litil hóll; er sjálfgert byrgi upp á honum; heitir það Lambabyrgi (98). Það eru stórir steinar, sem hallast hver upp að öðrum, og er hægt að skríða undir þá. Þar hefir grasafólk stundum legið. Austan við Ármötsbjarg er lítið þvergil, sem heitir Klauf (99); fyrir sunnan Klaufina, uppi á tungunni, er Brunkuhóll (100). Venju- lega er allur vesturhluti heiðarinnar, frá Austurá að Þorvaldsá, kallaður Tunga. Benedikt Jónsson.