133 það undir atkvæði fundarmanna, hvort gefa skyldi ritið út, og var það samþykkt með öllum atkvæðum. Formaður gat þess, að sakir fjárhagsörðugleika þeirra, er nú stæðu yfir meðal almennings, hefði verið horfið frá því, að senda út boðsbréf þau, er ráðgert var á síðasta aðalfundi að senda út. Síðan sagði hann fundi slitið. II. Aðalfundur 1933. Hann var haldinn á sama stað miðvikudaginn 3. Maí kl. 5 síðdegis. Eftir að formaður hafði sett fund, gerði hann grein fyrir fjárhag félagsins og athöfnum síðast-liðið ár, las upp og lagði fram ársreikning þess, samþykktan og endurskoðaðan athugasemdalaust. Höfðu út- gjöldin, kostnaður við útgáfu og útsending árbókarinnar o. fl., numið 1963,61 kr., en þó í sjóði við árslok 224,83 kr., auk hins fasta sjóðs félagsins, 3500 kr., sem er í verðbréfum. Höfðu fundarmenn ekkert að athuga við reikninginn eða skýrslu formanns. Samkvæmt félagslögunum skyldi fara fram kosning embættis- manna og 3 fulltrúa. Kom fram uppástunga að endurkjósa þá alla, er verið höfðu, og var það gjört með öllum greiddum atkvæðum. Þá skýrði formaður frá því, að þegar væri fullprentuð ritgerð Margeirs Jónssonar um bæjanöfn í Þingeyjarsýslu, sem samþykkt hafði verið á síðasta aðalfundi að taka til útgáfu, og að nú væri fullsamið registur yfir árbækur félagsins 19051929, af Vigfúsi Guðmundssyni. Lagði formaður þessi rit fram. Kvað hann registrið myndi verða prentað, er fjárhagur leyfði, og ritin síðan send bæði út til allra félagsmanna í stað árbóka yfirstandandi og næsta árs. Samþykkt var að senda útvarpsstöðinni árbók síðasta árs með tilmælum um, að hennar yrði getið. Loks fóru fram nokkrar um- ræður um fjölgun félagsmanna og önnur félagsmál. Að því loknu sleit formaður fundi. III. Aðalfundur 1934. Hann var haldinn á sama stað laugard. 15. Des., kl. 5 síðdegis. Er formaður hafði sett fund, minntist hann þeirra félagsmanna, er látizt höfðu siðan síðasti aðalfundur var haldinn, þeirra heiðurs- félaganna, drs. Finns Jónssonar, prófessors, og drs. Sophusar Miillers, fyrrum forstöðumanns þjóðminjasafnsins í Kaupmannahöfn, og þessara