Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 35
ÞÓR MAGNÚSSON
ASKAR STEFÁNS Á MALLANDI
Sumarið 1962 skrásetti ég Byggðasafn Skagfirðinga, sem komið
er fyrir í gamla prestssetursbænum í Glaumbæ, og þá veitti ég athygli
þremur mataröskum þar, sem eru svo nauðalíkir hver öðrum, að
þeir eru greinilega gerðir af sama manni. Ragnar Ásgeirsson ráðu-
nautur, sem safnaði allmiklu af munum til safnsins um það leyti
sem því var komið á laggirnar, og þar á meðal einum þessara aska,
tjáði mér, að honum hefðu fylgt þær upplýsingar, að hann væri
smíðaður af Stefáni Jónssyni á Mallandi á Skaga. Síðar veitti ég
athygli fjórum sams konar öskum og einu stöku askloki í Þjóð-
minjasafni. Um einn askinn, Þjms. 6256, hafði Matthías Þórðarson
skráð í bækur safnsins, að hann væri „eptir Stefán askasmið á Mal-
landi á Skagaströnd.1'1 Síðar frétti ég einnig, að Pétur Jónasson á
Sauðárkróki ætti sams konar asklok. er hann hafði íengið frá Jóni
Þorfinnssyni bónda á Mallandi (d. 1960), og fylgdi því sú sögn, að
það væri skorið af Stefáni Jónssvni.
Það má því telja öruggt, að þessir askar séu eftir Stefán, enda
koma ártölin á þeim vel heim við ævi hans, svo sem síðar segir. Reynd-
ar fylgdu þær upplýsingar einu askloki af þessari gerð, sem er í
Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna og komið úr Víðidal, að
það væri af Ströndum, en það er vafalaust ágizkun ein og dregin af
því, að á Ströndum var alls konar ílátasmíði mikið stunduð fyrrum,
og er algengt, að Strandamanna sé getið sem samnefnara fyrir íláta-
smiði yfirleitt.
Askar með handbragði Stefáns eru allmargir til enn og vafalaust
fleiri en ég hef rekizt á, enda hef ég ekki gert sérstaka leit að
þeim nema 1 Þjóðminjasafni og nokkrum byggðasöfnum. En að
minnsta kosti eru þeir, eða stök asklok, til í Þjóðminjasafni, Byggða-
safni Húnvetninga og Strandamanna, Byggðasafni Skagfirðinga,
1 Malland er þó ekki á Skagaströnd, heldur á austanverðum Skaga.